Einn af hinum fjölmörgu hlutum sem prýða framtíðaróskalistann minn er SMEG ísskápur.
Þessi ísskápur gæti unnið allar þær fegurðarsamkeppnir sem til eru fyrir ísskápa svo fallegur er hann.
Það kom mér reyndar á óvart að þessi hönnun væri ekki eldri en hún er. Það var ekki fyrr en um árið 1990 sem ítalska fjölskyldufyrirtækið SMEG bætti línu af 50’s ísskápum við vöruúrval sitt sem einkenndist áður af eldavélum og ofnum.
Já þá vitið þið það!
Skrifa Innlegg