fbpx

ELDHÚSKRÓKURINN

HeimiliPersónulegt

Svona lítur eldhúskrókurinn út hjá mér -enn sem komið er.. ég er í miklum pælingum þessa dagana með myndir á veggi, en það bendir allt til þess að ég muni panta plagat af netinu, en þar virðist mesta úrvalið vera. Eruð þið með ábendingar um verslanir sem selja flottar myndir/plagöt?

Svo langar mig mikið að bæta við tveimur stólum, og eins og er þá er TON stóllinn efst á óskalista, þá færi einn Ikea stóllinn inná ‘skrifstofu’, en mér finnst nóg að hafa tvo þeirra í eldhúsinu. Ég er mikið ánægðari með þá eftir að Andrés sprautaði þá svarta fyrir mig, en ég keypti þá hvíta á barnalandi fyrr á árinu.

Heimilið er s.s allt að smella saman hægt og rólega, en ég viðurkenni þó að það er ennþá smá tómlegt.. hvítt gólf og hvítir tómir veggir eru ekki málið;)

Góða helgi allir!

JÓLA DIY

Skrifa Innlegg

10 Skilaboð

  1. Stína

    30. November 2012

    En dásamlega fallegt!

  2. Daníel

    30. November 2012

    flott ljósið þitt :)

  3. Greta

    30. November 2012

    ég held þú neyðist til að pannta á netinu, við Halli eða Halli panntaði plaggatið sem við erum við í stofunni á netinu;)

  4. Thelma

    30. November 2012

    Mér þykir ansi gott úrval á http://www.etsy.com/ og þar getur maður auðveldlega dottið inná fólk sem gerir góða póstera. En ég held nú að þú þekkir alveg þá síðu ;)

  5. Hildur

    1. December 2012

    Hvar fékkstu þetta fallega ljós?

  6. Dísa

    1. December 2012

    Hvernig sprautaðirðu stólana?

  7. Svart á Hvítu

    1. December 2012

    Takk fyrir ábendingarnar, ætla að skoða þetta um helgina, er æst í að koma einhverju upp á veggina:)

    @Hildur, Ljósið heitir copper shade og er eftir Tom Dixon, ég fékk það notað á barnalandi fyrir nokkru síðan, en þau fást ný í Lúmex.

    @Dísa, þar sem að kærastinn minn er húsgagnasmiður þá tók hann þá bara með í vinnuna og sprautaði þar. Það er að sjálfsögðu alltaf hægt að gera svona sjálfur, mála eða spreyja.. ég bara nennti því ekki:)

    -Svana

  8. Silvá

    4. December 2012

    Loveshop á etsy er með svakalega flott plaggöt :)

  9. Katrín Andrés

    5. December 2012

    Ooo þetta er svo fallegt ljós. Er það alveg 40 cm í þvermál? :)