Núna liggur aldeilis á Lottó vinningnum sem ég reyni við vikulega (nánast). Haldið þið ekki að eitt fallegasta ljós sem ég hef séð sé komið til landsins en verði bara til sölu í 3 mánuði! Og never again.
Hannað af Poul Henningsen og gefið út af Louis Poulsen í tilefni þess að þessi snillingur hefði orðið 120 ára í ár.
Það á ekkert að gefa fólki séns sem er að leggja pening fyrir … neinei, við skulum bara hætta að selja það þann 31.maí um allan heim.
Ég finn það þá bara á flóamarkaði þegar ég verð sjötug.
Skrifa Innlegg