fbpx

DIY: Jeffrey Campell

DIY

Vá ég var að fá frábæra hugmynd haha.
Ég hef verið að hugsa frekar mikið um Jeffrey Campell skó nýlega og ein bekkjarsystir mín var í Tick skónum á föstudagskvöldið.
En þeir líta svona út:
Fáránlega töff skór!
En þar sem ég á takmarkaða peninga og alls ekki nóg til að splæsa í 27þús kr skópar þá datt mér í hug að búa til mína eigin JF með teiknibólum:)
Eeeen þar sem ég er í mikilli sunnudagsleti þá ákvað ég að googla þetta DIY fyrst og viti menn, auðvitað hefur einhver önnur líka fengið sömu hugmynd!:)

Þessvegna ætla ég að sýna ykkur hennar útgáfu og mína síðar.
Ætla að labba í gegnum Kolaportið á eftir að leita eftir ódýrum skóm.
En það sem þarf er:
Skópar með fylltum hæl/Wedges
u.þ.b 1000 teiknibólur
Hanska, því annars verða puttarnir uppgefnir eftir vinnuna
Hamar, ef að botninn er stífur
Lím, -sú sem gerði þessa gleymdi því og nokkrar bólurnar duttu úr.


Elska þetta:)

-S

Going the distance

Skrifa Innlegg

14 Skilaboð

  1. frida

    19. September 2010

    en góð hugmynd og kemur vel út..

  2. Anna Margrét

    19. September 2010

    ÓMÆ AÐEINS OF GEÐVEIKT!

    Fór einmitt og mátaði þá og bú hú skildi þá eftir því litla debetkortið vildi ekki borga brúsann!

    Hlakka til að sjá útkomuna hjá þér! Sunnudags gaman!

  3. Gerdur

    19. September 2010

    Vá flott hjá þér,sniðugt!!!

  4. Hjördís

    19. September 2010

    VÁÁ finnst eigilega flottara með lit :D

  5. The Bloomwoods

    19. September 2010

    ú er oft bíun að hugsa um akkúrat þetta líka!
    kemur flott út :)
    H

  6. HILRAG

    19. September 2010

    frábær hugmynd, hlakka til að sjá útkomuna :D

  7. Anonymous

    19. September 2010

    Mjög sniðug hugmynd, afhverju er ég ekki svona sniðug. Ég er ekki nógu dugleg að spara og gera sjálf. Hlakka mjöööög til að sjá útkomuna.
    gangi þér vel og vonandi finnuru flotta og ódýra skó (ef það er eitthvað sem heitir það á íslandi :s )
    kv.Valdís

  8. Þórhildur Ásgeirsdóttir

    19. September 2010

    ertu að grínast? sniðug ertu! ég rakst á svona einmitt hvíta wedge skó í kolaportinu bara núna á laugardaginn! hlakka til að sjá útkomuna!

    dontgonaked.blogspot.com

  9. Anonymous

    19. September 2010

    ohh, ég elska hvað þið eruð alltaf með gott DIY!
    þetta er æði:)
    kv. Adda

  10. Anonymous

    20. September 2010

    Brilliant :)

    -KT

  11. ólöf

    20. September 2010

    sniðugt:)

    mér finnst þeir nokkuð sætir bara svona í lit..

  12. Eva

    20. September 2010

    Vá langar að prufa, hlakka til að sjá þína útgáfu. En hvar er hægt að fá ódýrar teiknibólur?

    Frábært blogg og elska diy mest af öllu