fbpx

chanel who

Það eru að koma ný naglalökk frá Chanel.
vúhú
not.
Plís stelpur ekki kaupa þetta rusl!
Chanel framleiðir án efa lélegustu naglalökk í heimi! !!
Þeir ættu að halda sig við það sem þeir kunna best.
Litirnir eru jú fallegir
en drahasl.
Flagnar af á engum tíma og það hjálpar lítið sem ekkert að setja undir eða yfirlakk.
-S

Tom Dixon.

Skrifa Innlegg

18 Skilaboð

  1. Anonymous

    13. September 2010

    Ég hef nú bara alls ekki sömu reynslu af chanel naglalökkum og þú, ég á þrjú talsins og þau haldast yfirleitt á í að minnsta kosti viku án þess að flagna, fyrir utan hvað litirnir eru sjúklega fallegir!

  2. HILRAG

    13. September 2010

    ég reyndar er mjög ánægð með þau sem ég og hef átt. Finnst þau frekar góð, en þau geta náttúrlega alltaf verið misjöfn!

  3. Helga

    13. September 2010

    Ég er ekki alveg sammála þessum pósti. Ég vil helst nota chanel lökkin, þau eru dýr en peninganna virði.

  4. Anonymous

    13. September 2010

    …já mín reynsla er að þau eru sko ótrúlega léleg :/ 2 umferðir og yfirlakk og draslið er farið daginn eftir. Hélt þetta væri bara ég… ?!

  5. Gerdur

    13. September 2010

    Chanel naglalökkin eru svo mikið HYPE, alltof mikil peningur fyrir naglalakk!! Ég elska naglalökk og gaman að breyta um liti, ef ég er að spreða þá kaupi ég Make Up Store eða OPI naglalakk, bæði ótrúlega góð.

  6. Svart á hvítu

    13. September 2010

    Vá en hvað það kemur mér á óvart.. Flestar ef ekki allar sem ég hef rætt við eru einmitt sammála mér.
    Margar af mínum vinkonum mínum hafa keypt sér Chanel naglalökk og hafa sömu sögu að segja, lakkið flagnar furðulega fljótt af. Og mútta mín einmitt dauðsér eftir að hafa splæst í eitt bleikt og fínt.

    Ég hef allavega keypt mér 3x Chanel lakk, 2x á Íslandi, 1x í Hollandi og eru þau öll jafn hrikalega léleg.

    Er sammála þér Gerður, ef ég ætla að spreða í lakk þá verður það frekar fyrir valinu í dag.
    Annars er depend bara ágætt- apótek lakkið ódýra:)
    -S

  7. Ella

    14. September 2010

    Ég er sammála, thau eru endalaust lengi ad thorna og madur má ekki reka sig í neitt thá flagnar draslid af. Og svo finnst mér burstinn líka alltof stór og klunnalegur… fae mér ekki aftur Chanel lakk !

  8. Áslaug

    14. September 2010

    Það VERÐUR náttúrulega að vera UNDIRlakk í hvert einasta skipti…Og yfir :)

    En ég hef ekki reynslu af Chanel lökkunum en OPI gerir alltaf svipaða liti og hefur mér því fundist óþarfi að mörgum þúsundköllum í naglalakk..

  9. Anna Margrét

    14. September 2010

    Ég er nú svo ossalega praktískt í öllum mínum kaupum (not…)
    Eða jú þegar það kemur að naglalökkum þá er ég komin með ansi gott trikk.

    Þeir litir sem ég nota mest og kannski yfir vikuna eru svart, rautt eða fölbleikt. Þá nota ég OPI, sem er jú ógeð dýrt en þau eru góð og haldast á.
    En stundum langar mann að vera svolítið fleppaður og vera með gult og grænt og appelsínugult og allt þar á milli og þá er nóg að kaupa Depend apóteks naglalakkið sem kostar næstum því ekki neitt (miða við OPI) Já þau eru ekki jafn góð og nei þau haldast ekki jafn vel á….en það er óþarfi að borga 2-3000 fyrir eitt appelsínu gult flipp…:-)

  10. Telma

    14. September 2010

    Vá hvað ég er sammála! Chanel framleiðir bara rusl naglalökk, ef satt skal segjast. Þau endast ekkert á nöglunum og fara í þokkabót mjög illa með þær. Þetta er eitthvað sem ég mæli engum með að kaupa.

    Er fólk nú líka ekki bara að missa sig yfir þessum lökkum því þetta er frá “Chanel” og vill bara vera flott á því?

  11. Anonymous

    14. September 2010

    Ég á nokkur, og finnst þau öll alveg æðisleg! Pússa alltaf neglurnar, set OPI Nail Envy og svo naglalakk, og þau haldast alltaf á í að minnsta kosti viku :)
    Skil samt pointið með verðið, hef flest fengið að gjöf og er mjög treg að kaupa þau sjálf. Dáldið mikið overpriced..

    Æðislegt blogg btw!

  12. Anonymous

    15. September 2010

    Sælar,

    ég heyrði eitt sinn að neglur fólks væri mismunandi alveg eins og hár og húð. Þess vegna taka neglur mismunandi vel við naglalökkum og halda þeim mis lengi.

    kv
    Helena

  13. Anonymous

    15. September 2010

    Mér finnst Depend naglalökkin glötuð :S Þorna í glasinu og ég geri ekki annað en að bæta asíntoni útí til að geta notað þau aftur.

    En á svipuð verði (289 kr) fást naglalökk í Mega store í smáralind :P Hef fína sögu af þeim að segja. Geri svo sem ekki miklar kröfur fyrir 300 kall en þau endast betur en Depend :)

    kv. Bára

  14. ólöf

    15. September 2010

    ég nota næstum alltaf Depend haha..:) á samt fínt mintugrænt frá Make up store (þá var ég að splæsa..borga ekki mikinn pening almennt í naglalökk)..og ö..glært styrkjandi naglalakk frá Nivea..

    en mér finnst Depend svo fín, endast vel á tásunum (er alltaf með á nöglunum og þarf frekar sjaldan bara að bæta á það)..ekki sérlega vel á fingurnöglunum en samt alveg ágætlega – ég endist líka yfirleitt stutt með hvert hvorteðer haha….finnst svo fínt að geta prófað mismunandi týpur og svona..;)

    hef ekki prófað Chanel lökkin en hafði líka hugsað að þau væru ekki þess virði þó þau væru dýr, amk ekki hefðbundu litirnir (svart, rautt..o.s.frv sem er til í næstum öllum öðrum tegundum naglalakka)..en hvað þá ef þau eru líka léleg..en ætli það sé ekki líka misjöfn reynsla svosem, veit ekki..

  15. nannadis

    17. September 2010

    Er hægt að vera með sama naglalakkið í HEILA viku án þess að það flagni!?
    Kannski ef maður er rúmliggjandi, þið afsakið… ;)

    Ég nota alltaf bara Depend, ódýr og skemmtileg. Set oftast undirlag/yfirlag og það helst ágætlega á í 1-3 daga.

    Finnst líka ekkert spennandi að vera með sama lakkið í heila viku.

  16. inga

    18. September 2010

    Það er lang þægilegast að fá sér gelneglur með heil lit. Ég var að fá mér rosa fallegar neglur í fyrradag með þessum brúngráa lit, svo neglurnar lúkka eins og þær séu fullkomlega lakkaðar og endast í 4-5 vikur :)

  17. ásta

    30. September 2010

    inga: þangað til það koma skil þegar þínar fara að vaxa :S það er soldið eitthvað cheap:/

  18. Anonymous

    15. November 2010

    Nei, ég get ekki verið sammála því, ég á 5 chanel naglalökk og þau eru með þeim betri sem ég á, þau haldast lengi. Samt verð ég að segja að miðan við að þau kosta formúe þá ættu þau að vera alveg súper naglalökk, einsog Gosh naglalökkin, þau eru svakalega góð og ódýr.