Í tilefni af 175 ára afmælis Kähler hefur þetta danska keramíkfyrirtæki gefið út sérstaka afmælisútgáfu af vinsæla Omaggio vasanum með handmáluðum koparröndum. Omaggio vasarnir hafa verið sérstaklega áberandi undanfarin ár og varla hægt að fletta innanhússtímariti án þess að rekast á gripinn.
Koparvasarnir verða framleiddir í takmörkuðu upplagi og hefst sala á þeim í ágúst, en minnsti vasinn kemur ekki fyrr en í nóvember, -þó er hægt að tryggja sér eitt stykki á vefsíðu Designfund.dk og þá færð þú vasann sendann þegar að þeir koma úr framleiðslu.
Já eitt stykki í kopar takk!
:)
*Uppfært* Hægt að skrá sig á biðlista eftir vasanum hjá versluninni Hrím!
Skrifa Innlegg