Ég á eina mjög sniðuga vinkonu, hana Fatou. En hún fékk þá hugmynd að mála Audrey Hepburn á heilann vegg í sjónvarpsherberginu og fékk bestu vinkonu sína Beggu (Bergrún Íris-Innlit/Útlit) til að hjálpa sér við verkið. En hún Begga er ótrúlega flink að mála skemmtilegar myndir í barnaherbergi en hægt er að sjá verk hennar hér.
Þær notuðu skjávarpa við verkið og teiknuðu útlínurnar og fylltu svo uppí með dökk-grárri málningu!
Æðislegt, ekki satt?:)
Skrifa Innlegg