Ég er ánægð með að komið sé smá úrval af dagatölum eftir íslenska hönnuði, fyrir utan rifdagatalið sem ég hef áður skrifað um þá er ég einstaklega hrifin af dagatalinu sem Guðrún Valdimarsdóttir vöruhönnuður hannaði nýlega.
“Plakatið er þannig að allt letur er laserskorið úr pappírnum svo liturinn og áferðin á veggnum sem það hangir á sést í gegn. Þá er líka hægt að leika sér með liti á letrinu ef það er sett í ramma með lituðum pappír fyrir aftan.”
Fæst í Hrím:)
Skrifa Innlegg