Ég kíkti við í Epal í fyrradag alveg ótrúlega spennt því ég ætlaði loksins að fá mér einn Ton stól, en það var því miður ekki hægt að selja mér einn strax því að nýr veitingarstaður væri að fara að opna í vikunni og hefði fengið alla svörtu stólana!
Svo rakst ég á þessa mynd á facebook áðan frá veitingarstaðnum MAR sem opnar á föstudaginn í Hafnarbúðum, en þar mun hönnunarverslunin Mýrin einnig opna:)
Það er alveg greinilegt hvar stólarnir enduðu! Ég er frekar spennt fyrir þessum nýja stað, en Hafnarbúðir verða staðsettar á Geirsgötu 9 í miðbæ Reykjavíkur.
Stóllinn minn fær þá bara að bíða betri tíma:)
Skrifa Innlegg