Á morgun ætlaði ég að vera búin að gera ýmislegt hér heima, hengja upp myndir, skreyta eldhúsinnréttinguna, setja upp gardínur, þvo handklæði og mála hitalagnir inná baði bleikar..
Ég átti nefnilega von á einni minni albestu vinkonu frá Danmörku í heimsókn+gista, hún er mikil smekkdama og því vildi ég helst hafa allt spikk og span.
En svo kemst ég að því að hún kemur ekki á morgun… heldur á eftir!
Svona átti innréttingin að vera orðin fín! Þetta er án efa minn allra versti ávani, að vera alltaf á síðustu stundu.. og mikið þoli ég það stundum ekki.
En svo opnar snilldarverslunin NUR á morgun á Laugavegi 45! Er soldið spennt fyrir því. Hlakka til að geta sýnt ykkur myndir af fegurðinni sem mun fást þar. En vinkona mín og ofurpæjan Sigrún Rut Hjálmarsdóttir er að opna verslunina.
xxx
Skrifa Innlegg