Það er að verða æ algengara að sjá glerveggi notaða til að skilja að rými og það kemur sérstaklega vel út í litlum íbúðum því glerveggurinn leyfir birtunni að flæða í gegn. Ég tók saman nokkrar myndir sem ég hef vistað hjá mér undanfarið en ég er mjög hrifin af þessu trendi og vonast til að sjá meira um glerveggi á íslenskum heimilum. Við megum nefnilega varla við því að loka neina birtu úti ♡
Ég vil minna á að hægt er að smella á mynd og fletta þá í gegnum þær í stórum stærðum – og einnig er hægt að smella á Pinterest hnappinn til að vista þær myndir hjá ykkur sem þið viljið halda utan um. Mæli með því!
Skrifa Innlegg