Áfram held ég að segja ykkur fréttir úr hönnunarheiminum en það sem er helst í fréttum í dag er að búið er að frumsýna nýjustu útgáfuna af Omaggio vasanum fræga og kemur hann bráðlega í verslanir með perluáferð ♡ Einstaklega falleg útgáfa sem mun án efa slá í gegn hjá hönnunaraðdáendum!
Fréttirnar sá ég fyrst á instagramsíðu Epal… mæli með að fylgja þeim, @epaldesign
Uppstillingin hjá Kahler á nýju vörunum var mjög falleg,
Uppstoppaðir fuglar heilla mig alltaf, frumleg borðskreyting hjá Kähler
Þráðlaus hátalari frá Kähler… það eru aldeilis fréttir!
Falleg lína hönnuð af Anders Arhøj fyrir Kähler
Og þessi sæti mörgæsarvasi/kanna bætist líka við ásamt fleiri fallegum vörum!
Perlu Omaggio vasinn er eftir að slá í gegn það er ég alveg viss um! Hvernig lýst ykkur á?
Skrifa Innlegg