Heimsókn er nýji uppáhaldsþátturinn minn! Hann er sýndur á laugardagskvöldum eftir fréttir í opinni dagskrá á Stöð 2, ég á reyndar ekki sjónvarp en ég horfði bara á síðasta þátt í tölvunni, en þá var Rut Kára heimsótt, en hægt er að horfa á þann þátt hér. -Sá þáttur var æðislegur btw.
Núna var ég að rekast á þessar myndir á visir.is, en hún Marta María verður heimsótt í næsta þætti!
Þessi blái litur öskrar á mig Carrie Bradshaw..:)
Myndir teknar af visir.is, ljósmyndari: Anton Brink
Sindri Sindrason er þáttastjórnandi Heimsóknar, sem er nokkurskonar blanda af Innliti útliti & Sjálfstæðu fólki. Hlakka til að horfa á morgun!
l o v e i t.
Skrifa Innlegg