Mig hefur lengi dreymt um skart frá Hildi Hafstein og því gladdi það mig mikið að uppgötva í morgun að hún væri að opna litla verslun/verkstæði á Klapparstígnum.. ég hef fylgst með tómu verslunarrýminu þar í smá tíma og því verið spennt að komast að því hver skyldi opna verslun þar. (ég vinn rétthjá)
Flottar hauskúpur undir skartið sem hún sagðist hafa fengið í versluninni Heimili og Hugmyndir (suðurlandsbraut).
Þessum myndum smellti ég á símann minn á meðan ég lét mig dreyma..
Og þessari smellti ég á símann minn þegar ég var komin heim hehe..
Skrifa Innlegg