Jæja þá er ég komin aftur eftir alltof langt jólafrí. Það varð reyndar extra langt þar sem að mér tókst að gleyma lykilorðinu mínu inná bloggið, þessi brjóstaþoka er alveg að fara með mig get ég sagt ykkur:) Núna er nýtt lykilorð komið í hús og ég get byrjað að deila með ykkur efni sem er byrjað að hlaðast upp á desktopinu mínu!
Byrjum á vorinu hjá Bloomingville sem er nokkrum númerum of fallegt, bæklinginn í heild sinni má finna hér, en ég tók saman nokkrar vel valdar myndir til að deila með ykkur. Bæklingurinn er alveg einstaklega vel unninn og myndataka og stílisering er til fyrirmyndar, ég mæli alveg með að fletta honum en óskalistinn lengist alveg um nokkra hluti get ég sagt ykkur.
Bleiki liturinn verður áberandi í vor ásamt gylltum tónum og fallegum plöntum.
Fyrir áhugasama þá fást Bloomingville vörur í Hrím og í Húsgagnahöllinni.
Skrifa Innlegg