Ég kíkti við í ofsalega fallega barnafataverslun í gær, bíumbíum sem að þær mæðgur Drífa Hilmarsdóttir og Dóra Sif Ingadóttir opnuðu í fyrradag. Ég kynntist Drífu í gegnum vinnu og veit því hvað hún er mikil smekkkona svo að ég var mjög spennt að kíkja við í nýju búðina þeirra mæðgna. Verslunin er alveg einstaklega smart og skemmtilega útfærð ásamt því að fötin eru virkilega falleg. Þetta er svona verslun eins og maður myndi ramba inn í París eða Kaupmannahöfn, þið skiljið vonandi hvert ég er að fara:)
Hér eru nokkrar myndir til að sýna ykkur fíneríið,
Verslunin er staðsett í Síðumúla 13 fyrir áhugasama:)
Skrifa Innlegg