Fyrir nokkrum dögum síðan fékk ég að vita það að við eigum von á litlum strák í lok sumars, mjög skemmtilegar fréttir og það gerir mér líka auðveldara fyrir að sjá þetta allt fyrir mér, -ekki það að heimurinn skiptist í bleikt og blátt:) Ég er búin að vera í því að sanka að mér enn fleiri myndum og er farin að skoða rúm og önnur húsgögn sem ég þarf að bæta við mig, -meira um það síðar. Einn stærsti kosturinn er þó sá að núna fæ ég enn meira barnadót frá systur minni en sonur hennar verður einmitt eins árs í lok sumars og verður hættur að nota ýmislegt:)
…svo er ég líka svo heppin að ég er umkringd strákamömmum svo það verður ekki langt fyrir mig að sækja ráð;)
Njótið páskafrísins!
Skrifa Innlegg