fbpx

Pink is the new black

Hönnun

Þetta flotta kerti heitir Bravit candle og fæst á úber flottu síðunni Made in Design


Í tilefni 10 ára afmælis síðunnar er búið að sérhanna Bourgie lampann frá Kartell í BLEIKU,

en bleikur er einkennislitur Made in Design
Það eru ekki til endalaus eintök af honum svo ef þig langar í þennan einstaka lampa mæli ég með því að drífa sig, því við vitum jú öll að bleikur er uppáhalds litur stelpna haha:)
Þú kaupir hann með því að klikka HÉR

Hann kostar um 38þúsund miðað við gengi dagsins með sendingarkostnaði!!
Tek það fram að silfur kostar 69þúsund í Casa í Kringlunni.
Og þeir senda til ÍSLANDS.. húrra húrra húrraaaaaaa
Hann var gerður í 10.000 eintökum og nú þegar eru 3.000 seldir en þetta upplag á að duga fyrir allar stelpur í heiminum svo….
…..You do the calculation

Ég sé alveg systur mína með tár í augunum núna því hún á einn svartan og í henni rennur bleikt blóð í æðum..

-S

Þórunn Árnadóttir

Skrifa Innlegg

11 Skilaboð

  1. Mútta

    6. December 2009

    Ég sit hérna hjá henni systur þinni og ég get sagt þér það að hún grætur tröllatárum. En mig vantar alveg einn, er hann vinur þinn að selja þá??

  2. Hildur Dis

    6. December 2009

    Vá hvað hann er fallegur. Ég verð að eignast svona…. ég ætla að fara telja klinkið mitt og reyna að safna. Ég held að stofan mín verði fullkomin með einn svartan og einn bleikan:)

  3. Svana

    6. December 2009

    Hahahahh þið eruð ágætar:) En nei hann er ekki að selja þá, þeir voru bara hannaðir fyrir Made in Design síðuna og verða aðeins seldir þar í takmarkaðann tíma!! Og í takmörkuðu upplagi………

  4. karenlind

    6. December 2009

    Ég myndi samt passa mig : þær sem ætla að kaupa af síðunni. Tollurinn er gífurlegur og fólk hefur þurft að bíta í það súra epli að greiða hrikalega mikinn toll af vörum og þær komnar langt fyrir ofan verð á Íslandi. Svo ég geri passlega ráð fyrir því að það sé ódýrara að kaupa hér heima.. En engu að síður væri gaman að eiga stúlku og kaupa einn í herbergi hennar :-)

  5. SVART Á HVÍTU

    6. December 2009

    En á tollsíðunni er miðað við 10þúsund krónur sagði ein mér sem kynnti sér þetta. Eða s.s á þennan pakka þá. En hún sendi fyrirspurn á sölusíðuna og bað um að merkja pakkann sem gjöf?
    Hmm þetta verður spennó því það eru 2 búnar að panta sér núna:)
    En þá færi verðið uppí 48þús sem er 20þús ódýrara en heima þar sem hann er seldur á morðfjár.

  6. Anonymous

    6. December 2009

    Ah ok.. ohh viltu láta mig vita hvernig fer hjá þessum tveimur? Það er margt fallegt inn á síðunni og ég væri alveg til í að panta mér :)

    Ég hef bara heyrt svo hrikalega slæmar sögur af þessum tolli, fólk hefur borgað meira í toll en andvirði hlutanna! haha

    kv. Karen

  7. Anonymous

    7. December 2009

    Hann er ekki á 68 þús í Casa?? það getur ekki verið…keypti hann á 38 þús fyror jólin í fyrra..

  8. SVART Á HVÍTU

    7. December 2009

    Fékk þessar upplýsingar hjá systur minni í gær, hún ruglaði greinilega svarta og silfur.
    En verðið eru s.s
    Silfur á 69þús.
    Svartur og glær 45 þús.
    Gull 107þúsund
    Kremaður með gull inní 60þúsund

  9. Hildur Dis

    7. December 2009

    This comment has been removed by the author.

  10. Aslaug

    8. December 2009

    Haha GMG ég er búin að senda henni Annie svona 4 email um að ég vilji fá hann merktann sem gjöf á pappírunum…Neiiii fyrst svaraði hún: Já hann verður sendur til Íslands og einhvað sem tengdist ekkert spurningunni minni. Svo í seinna skiptið sagði hún: Því miður er pakkinn of stór til að pakka hann í gjafapappír hahaha…FAKKK!

    Mjög líklegt sem sagt að þeir merki hann EKKI sem gjöf!