fbpx

Húbba Búbba hár







Hárið á mér þráir einhverja tilbreytingu!
Efa þó að þetta verði fyrir valinu, en flott er það.

P.s. neðsta myndin er hún Tavi, uppáhaldsbloggarinn minn í langan tíma.
En hún er 13 ára gömul og hefur lagt tískuheiminn að fótum sér.
Hönnuðir keppast við að fá hana á sýningar hjá sér og senda henni föt og annað.
Hún er æðislegur penni og ég skelli oft uppúr þegar ég les bloggin hennar.
Hún á eftir að verða eitthvað stórt… Mjög stórt
Næsta Anna Wintour jafnvel…


Mæli með að kíkja á síðuna hennar HÉR
Hún býr með foreldrum sínum(-en ekki hvað) og um helgar fer hún á tískusýningar og situr á fremsta bekk með hinum stjörnunum. Þetta blogg byrjaði sem grín hjá henni, en vatt fljótlega uppá sig og hefur hún fengið umfjallanir í mörgum tískutímaritum ásamt því að vera á forsíðum.

Að ímynda sér að 13 ára barni hafi tekist þetta!
…held að ég hafi enn verið borandi í nefið á þessum aldri.

-S

Laugardagar eru fyrir fjársjóðsleit

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Eva Dögg

    28. February 2010

    Vá ein þrettán ára með allt á hreinu! Er að reyna að muna í hverju ég var þegar ég var þrettán, man ekki alveg hvort það voru FILA skórnir eða stussy buxurnar, kannski bæði…

  2. Glys&Glamúr

    28. February 2010

    Ég næ stundum ekki alveg vinsældum Tavi :/ Ég man ekki eftir einu skipti sem að ég hef hugsað “Vá þetta er flott” en hún má eiga það að hún er góður penni :) og það er held ég alveg á hreinu að hún verður stórt nafn í tískubransanum eftir nokkur ár!!

    En húbba-búbba hárið er hrikalega djúsí og flott ! :D

  3. Svana

    28. February 2010

    Nei hún klæðist alls ekki fötum sem ég væri til í að ganga í, en þetta snýst ekki um það held ég. Hún hefur einhvað sem fáir hafa. Við flest erum frekar “mainstream”, og þrátt fyrir að sumir halda að þau klæði sig einhvað spes, þá eru þau alls ekkert öðruvísi en aðrir:) En Tavi er mjög einstök hvað þetta varðar og er líka gagngrýnin, hún tekur t.d ekki við öllu því sem sent er til hennar eins og flestir aðrir tískubloggarar gera.
    Verður spennandi að sjá hvar hún endar!

  4. óskalistinn

    28. February 2010

    fíla marglita hárið :p var sjálf með blátt í hárinu fyrir 2 árum. Fólk horfði meira á mig og fannst ég eflaust hálf skrítin… en mér finnst gaman að geta sagt barnabörnunum að amma var bláhærð eitt skemmtilegt sumar :)

  5. Anonymous

    1. March 2010

    Elska bloggið ykkar!
    tékka hér inn nokkrum sinnum á dag! ;)
    Takk!!!

    En er svona hár í alvöru að koma í tísku? hehe finnst þetta voða
    skondið..

    En hún litla er nú alveg fyndin..
    sú verður eitthvað nafnið í tískuheiminum – en er sammála.. hef ekki enn séð hana í dressi sem ég fíla persónulega.

  6. Súsanna Ósk

    1. March 2010

    Mæli með því að öll börn á þessum aldri bori í nefið frekar en að hringsnúast í heimi tískunnar sem er bæði grunnhygginn og óheilbrigður (samt skemmtilegur líka) mér finnst að börn eigi að eiga æsku.

  7. SVART Á HVÍTU

    1. March 2010

    Ég efast um að svona hár komi í tísku á Íslandi, þótt að alltaf ein og ein þori:)
    En ég er mjög sammála þér Súsí, þetta er frekar sorglegt, en þó áhugavert að fylgjast með!
    Tískuheimurinn er gjörsamlega að gleypa þetta barn. Vonandi fer betur fyrir henni en MJ heitnum.
    -Svana