fbpx

Carla Bruni

Ein glæsilegasta forsetafrú í heiminum er án efa Carla Bruni sem er eiginkona Nicolas Sarkozy.
Þau snæddu dinner með forseta Rússlands ásamt konu í gærkvöldi í Elysee Palace í París.

Carla var í mjög aðsniðnum kjól frá Rouland Mouret sem sýndi vel línurnar en eins og þið sjáið þá var hún einnig brjósthaldaralaus. Sem mætti teljast ansi daring af forsetafrú.
Að ímynda sér hvað yrði sagt ef Dorrit okkar myndi taka upp á því eitt galakvöldið:)
Svo er hún í mjög lágum hælum til að láta kallinn ekki líta of illa út, en hann er víst ekki sá hávaxnasti.
En liturinn á kjólnum er alveg gullfallegur, eyrnalokkarnir og svo hárið. mwahh.

-S

Industry eftir Tom Dixon

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Súsanna Ósk

    4. March 2010

    Glæsi- dama þarna á ferðinni. Maður hefði nú ekkert á móti því að líta svona út, 42 ára gömul.

  2. Aslaug

    4. March 2010

    Já..Flott kona..En ég æli á skónna! :)