Ég og Svana vorum í smá bæjarferð í dag og kíktum m.a. í Kraum og Epal. Við sáum mikið af íslenskri hönnun þar sem Ísland var í aðalhlutverki eins og vinsælt hefur verið. Ég mundi þá eftir því að ég átti eftir að sýna ykkur þennan spegil sem við hjúin fengum í innflutningsgjöf!
Ég er alveg hrikalega ánægð með hann!!
Tilvalin tækifærisgjöf…
Mér datt í hug að koma með ábendingu hér á blogginu þar sem ég hef fengið margar spurningar um hann. Það er strákur að nafni Birgir Þór sem gerir þessa spegla og verðið er í kringum 12 þús. Hægt er að hafa samband við hann á biggi17@hotmail.com ef þið hafið áhuga:)
-R
Skrifa Innlegg