Það er merkilegt hvað maður er sjúkur í þessa sól þegar hún loksins birtist!
Ég hef ekki snert tölvuna alla helgina, það er svo margt annað að gera í svona veðri að það síðasta sem manni langar að gera er að fara heim í tölvuna að blogga! Sem betur fer er Svana búin að hugsa um síðuna okkar á meðan ég hef verið að drekka í mig sumarið…
En við fórum svona að velta því fyrir okkur hvað við vildum gera við þessa síðu í sumar. Frá því við byrjuðum með síðuna hefur komið inn nýtt blogg á hverjum einasta degi, stundum nokkur blogg á dag, fyrir utan 1 eða 2 daga um jólin. Við gerum okkur grein fyrir því að við eigum ekki eftir að vera alveg svo duglegar í sumar og þar að auki mun lesendunum pottþétt fækka talsvert yfir sumartímann.
Þannig við ætlum að fækka bloggunum aðeins, kannski í 3-4 í viku, stundum oftar ef við erum í extra miklu stuði, bara í sumar… Vonandi fyrirgefiði okkur það!:)
G*L*E*Ð*I*L*E*G*T S*U*M*A*R
Skrifa Innlegg