fbpx

Cape

Ég er svakalega mikill cape fan! Mín allra uppáhalds vetrarflík…
falleg þessi!
asos.com
Væntanlegt í H&M
Ég á tvær slár, báðar svartar, aðra saumaði ég mér sjálf og hin er úr Spúútnik.
Mig langar ofsalega í nýja fyrir veturinn! Helst í gráum eða camel lit, köflótta eða mynstrótta jafnvel… Ég bind vonir mínar við alla þessa íslensku hönnuði sem hafa verið duglegir/duglegar að hanna og sauma svona slár!
Annars hlakka ég líka mikið til að sjá vetrarlínuna frá H&M, aldrei að vita hvað leynist þar…:)
-R

Acne love

Skrifa Innlegg

9 Skilaboð

  1. Anonymous

    8. August 2010

    langar í númer 4

  2. ólöf

    8. August 2010

    fáðu þér slá hjá KOW eða Líber á laugarvegi (tvíeykið frá KVK)..algjör snilld!:) ótrúlega fallegar, í ljúfum haustlitum eða með fallegum litamynstrum (aðallega röndótt þá samt)..:) mega fínt, þær hafa lengi verið á mínum lista allavega..kannski ég láti nú verða af kaupunum :P

    kannski ég sé skósjúk, en vá hvað mig langar í skóna sem gellan úr H&M er í, fer líka sjúklega vel við svona stóra og kósý slá;)

  3. Svana

    8. August 2010

    Saumum okkur saman cape fyrir veturinn:):) En hvað það væri næs..
    Og MIKIÐ er ég glöð að þú sért komin í bloggírinn aftur mín kæra:) Þetta var orðið frekar einmannalegt.

  4. Margrét

    8. August 2010

    Já mig langar líka í nýjan cape fyrir veturinn. Og mjög svo sammála með skóna frá H&M – þeir eru mega nice!!

  5. Svart á hvítu

    8. August 2010

    ooh já skórnir eru æði!!
    Og takk Ólöf fyrir ábendinguna, kíki pottþétt þangað:)

    -Rakel

  6. Anonymous

    8. August 2010

    Eigið þið snið af cape sem þið viljið kannski deila með okkur? ;)

  7. Begga

    8. August 2010

    oooh :( ég er alltaf að leita mér að fallegri slá á viðráðanlegu verði en gengur barasta ekkert :(

  8. Svart á hvítu

    9. August 2010

    Ég á snið af þessari sem ég saumaði mér en það er nú samt bara eitthvað gamalt snið frá mömmu sem búið að að breyta og bæta við, efast um að ég komi því á tölvutækt form því miður;)

    -Rakel

  9. The AstroCat

    10. August 2010

    Fýla svo capes! Var að kaupa mér eina frá KOW. Hún Kolbrún er með 50% afslátt núna út ágúst. Æðisleg, svört með fallegri slaufu á bakinu. Mæli einnig með Líber líkt og Ólöf gerði :)