fbpx

Looklet.com

Er ein mesta SNILLD sem ég hef prófað!
Rakst á þessa síðu á Trendlandi og ákvað að kíkja… En þar getur þú klætt módel í öll helstu fötin sem þig dreymir um og skórnir eru æði líka! Merki eins og Acne, DinSko, Topshop, H&M og fleiri.
Svo færðu að velja bakgrunn og útlit fyrir módelið þitt!
Jiiii þið bara verðið að prófa ÞETTA


Mig langar t.d í þessum fötum í skólann á morgun.. verst að ég á þau ekki til!

Við sitjum hérna hjúin uppí sófa að tölvunördast og ég bað hann að reyna að klæða módelið eins og ég myndi klæða mig, en ég held hún sé meira eins og hann vilji að ég klæði mig:)

Hef heyrt nokkrum sinnum síðustu daga “afhverju viltu ekki frekar vera í leðurjakkanum þínum…”
En ég er með æði fyrir hermannajakkanum mínum þessa dagana og er ég þá kölluð Che Guevara af mínum kæra:)

-S

Kling

Skrifa Innlegg

9 Skilaboð

  1. Anonymous

    26. August 2010

    Vó þori ekki að byrja sko.. gæti endað á því að fara mjöööög seintað sofa hahaha

    -KT

  2. Súsanna Ósk

    27. August 2010

    Hehe. Áhugavert að láta kæróinn klæða sig. Kemur alltaf skringilega út.

  3. klt

    27. August 2010

    Ég bloggaði um þetta í sumar líka..

    Lovely hvað öll blogg eru orðin eins.. :Þ

    En þetta er skemmtó:)

  4. Anonymous

    27. August 2010

    Þú getur fengið svona röndóttar sokkó í E-label :P kosta 2990 kr

    kv. Bára

  5. Anna

    27. August 2010

    Ha ha kannast við þetta. Ég er einmitt búin að búa í ullarslá sem ég frá Aftur. Hún er auðvitað over sized og það skemmir heldur ekki fyrir að hún felur allt sem erhmm, þarf að fela.
    Oftar en ekki heyrist þó í kærastanum mínum: En Anna, hérna, uh, æi, sko, villtu ekki vera í þarna jakkanum, æi þessum með hlébarðamynstrinum, útaf því sko uh, hérna, þá ertu svo sæt. Ekki að þú sért minna sæt í hinum, þú ert ótrúlega uh sæt…uh.ah..uh (heldur áfram út í hið óendalega)
    Ef hann mætti velja væri ég í nýþröngum gallabuxum, hlébarða blazer og í pinnahæla stígvélum.
    Hjálp! Ég held að kærastinn minn sé SKINKA!

  6. Anonymous

    28. August 2010

    Það var líka skrifað um þessa síðu í DV um daginn, ég er búin að vera húkkt síðan! :D

  7. Sóley

    2. November 2010

    Algjör snilld sem þetta Looklet er, enda er ég orðin aðeins of háð þessari síðu. Ég hef sko NÓG annað að gera!