20 Skilaboð
-
hahahahaha
-
Eru þetta for real sömu skórnir?? Finnst þessir á gellunni á efri myndinni lúkka mun betur.
Eða?? -
Hahahaha SVANA!! þessir úr kolaportinu eru nú ekki alveg eins.. en mér finnst þessir efri ekkert VIÐBJÓÐUR en langar heldur ekkert að kaupa þá :).. en þessir úr kolaportinu eru auðvitað meira en ógeðslegir haha
-KT
-
hahah! verð nú samt að viðurkenna að mér finnst þessir skór frekar flottir.. þessi efri þ.e.a.s :D
-
fíla þessa sem leighton var í miklu betur en þessi í koló eru snilld, haha. :)
-
hahaha, mér finnst þeir báðir frekar slæmir…
-
Hahah mér finnst þeir sko aaalveg jafn slæmir!
Mér myndi líða eins og ég væri með fílalappir í þessum hlunkum:)
Ótrúlegt hvað suma tísku ég get hreinlega ekki skilið!-Svana
-
hahah ojjj þessir koló eru HORROR!!! En eftir, tja.. ekki flottir að mínu mati en kannski ekki sömu skórnir samt sem áður ;)
EN ég er svo sammála vinkonu þinni með það að þessi skótíska í dag er að verða skuggalega lík buffaló viðbjóðnum! Ég er ekki alveg að meta þessa þróun.. veit um eina hárgreiðslukonu sem er ennþá í þessum Buffalo skóm og einum öðrum sem eru svipaðir nema með “svamp” botni.. geeðveikt háir! VIÐBJÓÐUR.. hélt enginn myndi láta sjá sig í þessu í dag. ÞAð sem það er búið að gera mikið grín af Buffalo .. haha
-
Haha Svana:) mér finnst þessir skór svo langt frá því að vera svipaðir! þessir neðstu eru ekkert smá ógeðslegir en þessir fyrir ofan eru mun skárri…
Hef samt ekki náð að koma mér inní þessa klossatísku! -
ohh mig dreymir um þessa skó – gaman að smekkur er svona misjafn :)
-
hahahaha! fyndin ertu. Þetta eru kannski ekki alveg jafn slæmir skór og þessir úr Kolaportinu (enda erfitt..ég nefni bara enn og aftur Louis Vuitton spring 2010 runway shoes ..ljótustu skór í heimi með loðskeggi) ..en mér finnst hinir skórnir ekkert meistarastykki heldur..
ég veit ekki hvort mér finnist þessir eða Acne með stálbotninum ljótari..finnst vera smá spaceboots stemming í þeim báðum, ég myndi ekki ganga í þessu sjálf en ég fæ ekki sjokk eins og þegar ég sá LV skóna:P
-
Ég er svo sammála þér! Skil ekki hvað það eru margar búnar að slefa af þessum hrikalega ljótu klossum á efri myndinni. Svo skil ég heldur ekki hype-ið með Lita skóna frá JC. Mér finnst þeir alveg einstaklega ljótir á fæti :Þ
-
Já Lita skórnir eru nú skór sem ég læt vera að krítera vegna þess hversu margar stelpur slefa yfir þeim:)
Ég myndi samt Aldrei ganga í þeim en þeir eru samt þónokkuð fegurri en þessir hér að ofan haha:) -
Ég er svo hjartanlega sammála þér, þessir skór eru viðbjóður!
V
-
hvernig eru litaskórnir frá jc?
-
þessir hérna;
http://www.fashionsquad.com/lita-by-jeffrey-campbell/ -
Svo næ ég ekki þessum Acne skóm:http://25.media.tumblr.com/tumblr_l6fjcsoyN61qzzzl7o1_500.jpg
Finnst þeir alveg skelfilegir hehe
Andrea
-
Já ég myndi allavega ekki tíma 80þúsund krónum í þá:)
Sumir skór eiga helst bara að vera uppí hillu sem skraut…
-Svana -
Ég ætla ekki að segja neitt um þetta því ég er hrædd um að eftir 2 mánuði mun ég vera einhversstaðar í búð, taka upp einhverja frænkuútgáfu af þessum klossum og gala yfir búðina:
OMG ÞEIR ERU GEÐSJÚKLEGA SJÚKIR!!!!
Ég sagði þetta fyrst um Pop Life skóna, muniði, sem voru til í öllum litum. Mér fannst þeir ógeð. Og jú nokkrum mánuðum seinna átti mín þá í öllum litum, með plast eyrnalokka í stíl; ógisslega sátt með lífið.
Ég þori ekki að segja neitt lengur…..:-p -
mér finnst Lita fallegir..en ég myndi sjálf ekki ganga í þeim..og þá vegna hæðar en ekki útlits..en svona spaceboots stemming hentar mér frekar illa hehe
Skrifa Innlegg