fbpx

Draumaskór

Ég keypti mér þessa skó í gær í Bianco. Þvílík himnasending!!
Hrikalega þægilegir, meira að segja fyrir 22 vikna bumbulínu að vera í á árshátíð heilt kvöld:)
Og eiginlega miklu flottari á fæti heldur en á þessari mynd…
Þeir minntu mig svo á þessa frá Forever 21 sem ég er búin að gera dauðaleit að á Ebay en finn aldrei í minni stærð… En ég er sko sátt með mína úr Bianco:)
-R

Rockaholic

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Anonymous

    7. November 2010

    Rosalega flottir.. er einmitt í leit að nýjum pumps. Hvað kosta þessir?

    Kv.
    Halldóra

  2. Björk

    7. November 2010

    Vá æðislegir skór, verða flottir við jóladressið í ár :)
    En getur sagt mér hvað hællinn er sirka hár ?

    Takk fyrir skemmtilegt blogg :)

  3. Anonymous

    7. November 2010

    vá æðislegir! Langar einmitt í svona svarta miu miu inspired hæla. Eru þeir úr satín? – líka forvitin að vita hvað þeir kosta.. :)

    kv. Margrét

  4. Svart á hvítu

    7. November 2010

    Hællinn er ca. 12cm en með 3cm platform. Virka voða háir en eru það ekki þegar maður er í þeim…
    Þeir kostuðu 15.900 og já úr satín:)

    -Rakel

  5. Agla

    16. November 2010

    Einmitt sem ég hugsaði þegar ég sá skónna að þeir væru svipaðir og F21 skórnir :)

    Og veistu – F21 skórnir mínir (sem eru eins og þessir nema með blómum) eru ROSALEGA óþægilegir svo ég held þú hafir bara gert mjög góð kaup ;)