fbpx

Heima hjá Karim Rashid

Heimili
Karim Rashid er einn frægasti vöruhönnuður heims, hann er ættaður frá Egyptalandi og var kosinn af the Times “most famous industrial designer in America”.
Hann er mjög umdeildur, sumir elska hann en aðrir hata hann.
Ég er mitt á milli.. hann á nokkrar vörur sem ég hrífst af
En ….. heimilið hans?
Ég er orðlaus.
Hann ásamt skvísukonunni sinni Ivana sem er efnafræði-verkfræðingur.
Jæja og hvað finnst ykkur ?
:)
-S

skemmtilegt.

Skrifa Innlegg

16 Skilaboð

  1. KarenLind

    17. November 2010

    Mér finnst þetta þrælskemmtilegt! Færi aldrei að hafa þetta svona sjálf.. En hann er augljóslega ekki að fylgja þessum týpíska tískustraum sem allir gera.

  2. Beggaq

    17. November 2010

    fíla eldhúsið – restin er waaaay too much fyrir mig.

  3. Anna Margrét

    17. November 2010

    Ha ha nei ég get ekki….ég get ekki…

    Ljótt flott er það eina sem ég get hikstað upp í augnablikinu. Ljótt en flott.

    Úff, ég er með höfuðverk núna

  4. SigrúnV

    17. November 2010

    Hahaha mér finnst tetta kúl heimili en vildi ekki búa tarna sjálf nema tegar ég er í nammibindindi… get ekki ímyndad mér ad madur turfi nammi tegar madur býr inní midjum lollypop! eda hvad… verdur madur meira æstur í nammi? hmmm…

    Annars langar mig í ALLT sem er í gluggunum hans :)

  5. Anonymous

    17. November 2010

    Nammi.. mig langar að búa í sleikipinnalandi! :)

  6. Anonymous

    17. November 2010

    Aðeins of mikið fyrir mig, minnir mig á Charlie and the chokolate factory eða eitthvað svoleiðis .. Annars er konan hans örugglega mest gordjöss efnafræða-verkfræðingur í heiminum eða hvað ?

  7. wardobe wonderland

    17. November 2010

    hahaha þetta er snilld, væri til í að fara i party þangað!!

    -alex

  8. Anonymous

    17. November 2010

    Úff … allt of mikið í gangi

  9. Anonymous

    17. November 2010

    OJJ

  10. Hildur

    17. November 2010

    haha mér finnst þetta hriikalegt! Ekkert heimilislegt við þetta, þetta er eins og nammigeimskip!
    Gæti aldrei búið þarna sjálf!

  11. Kristrún

    17. November 2010

    Ég held að orðið ,,nammigeimskip'' sem Hildur sagði hér að ofan eigi vinninginn í að lýsa þessum myndum.
    Persónulega finnst mér þetta einsog scene úr lélegri gjelgju bíómynd einsog spice world á kóki. Eina sem mér datt í hug þegar ég sá þetta..

  12. Anonymous

    17. November 2010

    Það eru margir mundir hjá honum sem eru æðislegir. Td í glugganum!
    En, ég mundi aldrei geta búið þarna.
    Ég vil hreinan stíl með litríkum, skemmtilegum munum inn á milli!

  13. Anonymous

    18. November 2010

    HAHAHAHA!
    Ég held ég hafi aldrei fyrr hlegið upphátt að innanhúsarkitektúr!
    Þau eru algert dúndur, bæði tvö.

  14. Gerdur

    18. November 2010

    Þetta er grúví, skemmtilegt þegar fólk skapar umhverfi sem því líður vel í, þetta er töff þó ég persónulega myndi ekki láta hanna svona heimili fyrir mig þá er þetta bold statement sem ekki nærri því allir þora að gera.

  15. Guðrún Ýr

    18. November 2010

    úff allt of mikið fyrir minn smekk…en ótrúlega margt fallegt þarna inn sem myndi poppa venjulega íbúð upp eitt og sér en þetta er way over the top!

  16. Þurý

    23. February 2011

    svakalegt! er reyndar alveg heví skotin í sófanum hans… þessum sem er með innbyggða borðinu. veit einhver hver hannaði hann?