Í þessum hrikalega kulda síðustu daga hef ég varla getað farið út fyrir dyrnar án þess að vera í kraftgalla.
Mig dreymir um sólarlönd en mig dreymir líka um falleg og hlý föt því kraftgalli er ekki mitt uppáhald.
Ég sá áðan þennan flotta risastóra trefil á bloggi sem ég les reglulega;www.comeovertothedarksidewehavecandy.com og núna læt ég mig dreyma um kunna betur að prjóna svo ég geti eignast eins og eitt stykki.
Þetta er hún Cindy og hún er 25 ára tískubloggari, hún hefur fengið fjölmargar fyrirspurnir varðandi einmitt þennan trefil/hólk sem að tengdamamma hennar prjónaði handa henni. Málin af honum sem eru ; 90x45cm
Jæja þá þarf bara að byrja að prjóna!
PS. ég verð að láta fylgja með eina mynd af fataskápnum hennar sem er to die for. Ef að minn fataskápur væri svona flottur þá væri ég nú smart á hverjum degi, þetta er bara eins og í flottri fatabúð!
Skrifa Innlegg