Muniði þegar ég nefndi fyrir nokkru að draumahúsið mitt sé á leið í sölu?
Nýjustu fréttirnar eru að það er núna í eigu amerískra erfingja. Týpískt!
Var að hringja í fasteignasala og biðja hann að hafa uppá þessu liði, ég þrái að komast inní það að skoða:)
Það er ekki eðlilegt hvað ég er skotin í þessu ljóta húsi, en myndin hér að ofan er frá ca 1920 þegar var verið að byggja Karmelklaustrið á Ölduslóð í Hafnarfirði og þarna glittir í húsið mitt sem var byggt árið 1903.
Skrifa Innlegg