Ein af mínum uppáhaldshönnuðum er hún Hella Jongerius, ég þrái ýmislegt sem hún hefur hannað og er ég smá fegin að ekki er hægt að kaupa hönnun hennar hér á Íslandi því ég hefði ekki efni á einum hlut. : )
útsaumað postulínsstell
Animal Bowl-2004. Var á óskalista múttu þangað til hún sá verðið…

Polder Sofa – en fyrir áhugasama þá er mjög líkur sófi eftir Guðrúnu Lilju að finna á Kjarvalsstöðum.
Núna stendur yfir yfirlitssýning á hennar verkum í Musem Bojimans í Rotterdam og ég hvet alla sem eiga leið hjá að kíkja við.
Nýlega leið yfir einn af sýningargestunum sem hrundi yfir alla þessa fallegu keramikvasa.
Og las ég að tjónið sé metið uppá mörg þúsund evrur –vandræðalegt…

Obbobbobb ég hefði dáið úr skömm : )
Skrifa Innlegg