5 Skilaboð
-
Ég vil svona. Ef bevítans filman í vélina væri ekki svona veðbjóðslega mikið dýr. Ég þyrfti styrk úr einhverjum sjóði,kúlulán og erlenda fjárfesta til að geta fyllt heilan vegg með polaroid myndum.
Bitur? Ég?….já :-(
-
Það er til forrit á netinu þar sem þú getur breytt myndunum þínum í polaroid, svo hrúgarðu þessu bara í framköllun í Hans Petersen og útkoman er glæsileg :P
(hef testað þetta sjálf, og gæðin í myndunum haldast)
Borgar 29 kr. fyrir myndina ef ég man það rétt ;)— Bára
-
Bára þú ert SNILLI… og hvaða snilldarforrit notar þú??:)
Þetta verð ég að sjálfsögðu að prófa!!
Anna Margrét afturkallaðu nú kúlulánið haha… ;) -
ég gerði svona hjarta á vegginn í svefnherberginu og ég notaði bara myndir í þessarri venjulegu stærð, kom mjög vel út
-
Æi ég las ekki smáa letrið…það er víst ekki hægt að afturkalla svona lagað. En vei TAKK takk TAKK Bára…þetta er algjör snilld! Jeij!!
Skrifa Innlegg