Nú er aðeins rúmur mánuður til jóla (!!) og flestir farnir að huga að jólagjöfum. Ég tók saman smá lista sem er blanda af bæði hlutum sem ég á eða mig langar í. Ég vona að þetta gefi einhverjum hugmyndir að gjöfum en hér neðar í færslunni leynast bæði afsláttakóðar og tilboð!
xx
1. Kaldi ullarhúfa og ullarlúffur – 66° Norður
Ég eignaðist þetta sett frá 66° fyrr í vetur og finnst það ótrúlega flott, fyrir utan hvað það er hlýtt!
2. Chanel Velvet Boy Bag – Chanel Boutique
Ég er forfallinn Boy aðdáandi og finnst velvet útgáfurnar mjög fallegar og öðruvísi.
3. Maria Black Jewellry – Húrra Reykjavík
Ég rakst á þetta skart á instagram hjá Húrra Reykjavík í vikunni og langar mikið í nokkra lokka úr línunni.
4. Laugar Spa BODY Mist – Laugar Spa
Sweet Amber er minn uppáhaldsilmur og ég baða mig í þessu spreyi alla morgna. Með kóðanum helgiomars fáiði 20% afslátt af öllum Laugar Spa vörunum í vefverslun.
5. Inika Organics varalitur – Lyf og heilsa
Persónulega nota ég sjaldan varaliti en ég eignaðist Nude Pink frá Inika í haust og hef notað hann óspart. Fullkominn nude litur og formúla sem heldur raka á vörunum. Ekki skemmir fyrir að vörurnar eru lífrænar.
6. Bose Soundlink Revolve Bluetooth ferðahátalari – Nýherji
Ég fékk Bose Soundlink ferðahátalara að gjöf frá Nýherja fyrir nokkrum mánuðum og hef notað hann alla daga síðan. Það fyrsta sem ég geri þegar ég vakna er að kveikja á honum og alltaf þegar ég er að koma mér í gírinn fyrir æfingu. Hljóðið er 360° og stærðin á honum er fullkomin til að ferðast með – bæði á milli herbergja heima sem og erlendis. Ég tók hátalarann bæði með mér til Miami og Kína svo hann hefur reynst mjög vel! Hátalarinn er einnig vatnsvarinn – tilvalinn í jólapakkann!
Afslátturinn er ekki lengur gildur: Kóðinn Birgitta gefur ykkur 15% afslátt af hátalaranum í netverslun Nýherja www.netverslun.is. Fyrr í haust var ég með afsláttarkóða af Bose SoundSport æfingaheyrnatólunum og vegna fjölda skilaboða um þau fékk ég þá í Nýherja til að virkja afsláttinn af þeim aftur! Sami kóði: Birgitta og hann færir ykkur 15% afslátt.
7. Gucci Survie Fox Fur Scarf – Gucci
Afar fallegur klútur með silfurref sem hentar vel yfir kaldari tímann.
8. Bitz diskastell og hnífapör – BAST Lífstíll Kringlan
Þrátt fyrir að búa enn heima er ég farin að huga að innbúi þegar ég eignast mína eigin íbúð og er ég dolfallin fyrir allri Bitz línunni. Hugsunin á bakvið hönnunina er skemmtileg og allir hlutirnir virkilega fallegir. Mér finnst svarta diskastellið ótrúlega flott og bæði gylltu og svörtu hnífapörin falleg í bland við. Bitz línan fæst í BAST í Kringlunni sem er ný lífstílsbúð á 1. hæð.
9. Nike Air Zoom Pegasus 34 – Nike
Mínir uppáhalds hlaupaskór í augnablikinu eru Pegasus frá Nike. Þeir veita góðan stuðning og eru með loftpúða í hæl og tábergi.
10. Gjafabréf í Betri stofu Lauga
Ég er nýkomin heim úr Laugar Spa þegar ég skrifa þessa færslu og það er alltaf jafn notalegt að fara þangað og slaka vel á. Fyrir jólin er 2 fyrir 1 tilboð á gjafabréfum í Betri stofuna í vefverslun: https://www.worldclass.is/vefverslun/tilbod/betri-stofan-adgangur-fyrir-tvostar/ Hvað er betra en að fá dekur í jólapakkann!
xx
Ég mun deila fleiri svona listum á næstunni og vona að þið getið nýtt ykkur þetta.
xx
Birgitta Líf
instagram & snapchat: birgittalif
Skrifa Innlegg