fbpx

Ný Bose æfingaheyrnatól

Æfingar

Í síðustu viku fékk ég skemmtileg skilaboð frá Nýherja þar sem þeir vildu gefa mér ný æfingaheyrnatól. Skilaboðin komu á virkilega hentugum tíma þar sem ég var einmitt að leita mér af nýrri týpu af heyrnatólum fyrir gymmið.

Ég hef síðustu fjögur ár alltaf notað þráðlaus lítil heyrnatól á æfingar sem henta vel fyrir alls kyns æfingar, bæði hlaup, hopp og fleira. Mér finnst mjög mikilvægt að heyrnatólin mín séu þráðlaus og haldist vel í eyrunum í öllum æfingum. Sú týpa sem ég var að nota var alltaf að eyðileggjast hjá mér og hef ég keypt mér ný oftar en einu sinni og oftar en tvisvar sem varð til þess að ég ætlaði ekki að fá mér eins aftur. Ég hafði heyrt mjög góða hluti um Bose SoundSport heyrnatólin og lofa þau góðu eftir að hafa prófað þau núna í nokkra daga. Þau eru mjög þægileg, haldast vel í eyrunum og er öll tækni og viðmót mjög gott í þeim. Ég er allavega ekkert smá ánægð með gjöfina og er spennt að vera aftur komin með góð heyrnatól í ræktina!

Ég sýndi frá heyrnatólunum á snapchat og fékk strax nokkur skilaboð frá fólki sem á eins og gefur þeim hæstu meðmæli! Heyrnatólin koma í nokkrum litum og fást í vefverslun Nýherja: https://www.netverslun.is/Hljod-og-mynd/Heyrnartol/Heyrnartol-BOSE-SoundSport®-bluetooth-bl/2_11658.action

Afslátturinn er ekki lengur gildur: Þeir hjá Nýherja vilja gefa ykkur afslátt af þessum heyrnatólunum og gefur kóðinn birgitta ykkur 15% afslátt af þeim. Afslátturinn gildir fyrir alla liti xx

 

Njótið vel! Ég er farin í smá frí til Miami með vinkonum mínum –

xx

Birgitta Líf
instagram & snapchat: birgittalif

Hawaii í hnotskurn

Skrifa Innlegg