Það tók nú ekki lengri tíma en þetta að gera förðunarlúkk innblásið af hinni flottu Angelicu Blick – sjáið meira HÉR.
Ég lagði mikla áherslu á að húðin væri fullkomin og með miklum ljóma ofan á kinnbeinunum. Ég passaði uppá að halda í náttúrulegar og mjúkar augabrúnir, gerði kinnbeinin sterk og að varirnar væri frekar kyssilegar ;)
Mér finnst þetta hafa bara tekist ágætlega hjá mér – hvað með ykkur?
Þetta var fullkomið tækifæri til að nota nýja varalitinn minn úr Retro Mac varalitalínunni. Hann er ótrúlega mjúkur en samt verður áferðin mött. Það eina var að það tók smá tíma að fá litinn svona sterkan en ég notaði varalitapensil til að bera litinn á og þá tekur stundum tíma að byggja litinn upp. Sjáið frekari lýsingar á vörunum sem ég notaði hér fyrir neðan næstu mynd.
Myndir teknar á Canon EOS M.
Húð:
Invisible Fluid Foundation – Estee Lauder, True Match Concealer – L’Oreal, Lumi Magique Primer – L’Oreal, þrefalt sólarpúður – Maybelline, BB púður – L’Oreal og Legendary kinnalitur úr Marilyn Monroe línunni frá MAC.
Augu:
Ombre Essentielle augnskuggi í lit nr 99 – Chanel, Master Precise Liquid Eyeliner – Maybelline og Lash Architect 4D maskari – L’Oreal
Augabrúnir:
Eyestudio Mono augnskuggi nr. 750 – Maybelline.
Varir:
Graceful varablýantur – Make Up Store og Retro Matte lipstick Relentlessly – MAC.
Ég er aðeins að gefa mér meiri tíma þessa dagana í að gera makeup lúkk fyrir ykkur – lofa að reyna að halda þessu betur við ;)
Ég skrifaði um ilmina hennar Christinu Aguilera í byrjun ársins að því tilefni að merkið hennar var valið sem besta „Celebrity Brand“ ilmvatnsmerkið – færsluna finnið þið HÉR. Núna er kominn nýr ilmur frá henni í verslanir sem nefnist Unforgettable.
Ilmurinn á að passa uppá það að gera okkur sem erum með hann ógleymanlegar. Hann fangar augnablikin sem enginn vill gleyma og er fullkominn til að passa uppá að jú sá sem þið viljið ekki að gleymi ykkur – geri það ekki. Þaðan er nafnið á ilminum komið.
„Leave an impression that will endure forever.“
Flaskan er í samræmi við fyrri ilmvötnin hennar Christinu og mér finnst áferðin á flöskunni virkilega skemmtileg en það er í alvörunni eins og hún sé umvafin blúndu – líka umbúðirnar utan um ilminn. Það eru nákvæmlega svona smáatriði sem ég hef gaman af varaðandi ilmvötn. Þetta smáatriði finnst mér strika undir það að ilmurinn er einstaklega kvenlegur og kannski dáldið rómantískur. En hugsunin á bakvið ilminn finnst mér líka dáldið rómantísk. Ilmurinn samanstendur af:
Toppurinn: plómur og ástaraldin
Miðjan: jasmín og tyrknesk rós
Grunnurinn: kasmír og vanilla
Í myndbandinu hér fyrir neðan getið þið skyggnst á bakvið tjöldin þegar auglýsingin fyrir ilminn var tekin upp. Þar segir Christina líka aðeina meira frá ilminum og innblástrinum á bakvið hann. Það er ótrúlega gaman að hlusta á Christinu tala um ilminn og ástæðurnar sem liggja að baki þess að hún ákvað að gera hann. Einnig er viðtal við Mark Liddell ljósmyndara sem sá um að gera herferðina fyrir ilminn. Hann lýsir því að hann hafi viljað gera herferð í takt við sýn Christinu og sem væri ólík þeim sem hafa komið áður.
„Moments that are truly unforgettable“
Þetta er klárlega ilmur sem þið ættuð að hafa í huga í jólapakkann fyrir skvísuna í fjölskyldunni:)
Ein af bloggurunum sem ég fylgist með á Instagram er hin sænska Angelica Blick. Mér þykir hún á köflum frekar hallærisleg sérstaklega þegar hún póstar endalaust af stútmyndum af sjálfri sér – ég er kannski ekkert skárri sjálf ;)
En hvað sem mér finnst um myndirnar hennar þá er hún alltaf óaðfinnanlega máluð. Ég tók saman nokkrar myndir af skvísunni til að finna mér innblástur fyrir næsta lúkk sem ég ætla að reyna að búa til tíma fyrir á næstunni. Myndirnar af síðunni hennar sem þið finnið HÉR.
Takið sérstaklega eftir flottu og náttúrulegu augabrúnunum hennar og hvernig hún skyggir andlitið – ég er einmitt að stefna á það að gera flotta contouring sýnikennslu fyrir síðuna á næstunni.
Ég ákvað að neðsta myndin yrði innblásturinn minn fyrir næsta lúkk – mér finnst þessi förðun æðisleg og hárið er fullkomið. Fullkomið helgarlúkk ekki satt ;)
Ég er ótrúlega heilluð af Helenu Rubinstein – hún er án efa ein af duglegustu og metnaðarfyllstu manneskjunum sem hafa starfað í snyrtivörubransanum. Hún á fullt af skemmtilegum „quote-um“ en þetta er án efa eitt af mínum uppáhalds.
Mér finnst þetta alveg geta verið satt hjá henni – hvað segið þið ?
Vonandi hefur fyrsta tölublað Reykjavík Makeup Journal alls ekki farið framhjá ykkur – en þið getið fundið það HÉR. Ég er komin á fullt að undirbúa næsta tölublað og ég er að vinna hörðum höndum að því að undirbúa myndatöku fyrir næsta myndþátt. Þar sem það á að koma út fyrir jól þá kemur kannski fáum það á óvart að þar verði eitthvað um hátíðarfarðanir og hárgreiðslur. Mig langar dáldið að koma með fullt af hugmyndum fyrir ykkur um farðanir og hárgreiðslur – svo allir geti fundið sér lúkk við hæfi. Ég er búin að vera að pæla dáldið í hárinu því mér finnst hárvörur á ákveðin hátt teljast sem snyrtivörur – það er bara mín skoðun. Þar af leiðandi er ég búin að vera að skoða mikið af hárgreiðsluhugmyndum sem passa við farðanirnar sem ég er búin að hugsa mér að gera. Þar sem ég er nú með frekar slétt hár en er helst alltaf með krullur þegar ég fer eitthvað fínt – ef ég hef tíma til að gera þær – þá fór ég að skoða krullujárn. Ég sá myndbönd af nýja járninu frá Babyliss og ég bara varð að fá að prófa það og sjá hvort það hentaði ekki fyrir einhverjar greiðslur í blaðinu.
Síðan ég prófaði nýja Babyliss krullujárnið, Curl Secret, í gærkvöldi hef ég varla getað hætt að hugsa um hversu mikil snilld það er! Þetta er krullujárn sem sér um allt saman sjálft, þið þurfið bara að klemma því utan um lokkinn sem þið viljið krulla og járnið dregur restina af lokkinum inní sig og svo lætur það vita þegar hárið er tilbúið.
Ég tók upp smá myndband af því hvernig járnið virkar og hver mín upplifun af því er. Ég þurfti reyndar að taka myndbandið upp nokkrum sinnum en það var alltaf eitthvað smá sem klikkaði sem gerði það að verkum að ég þurfti að byrja aftur – en það var sko ekki járnið sem var ósamvinnuþýtt….
Mig langar að benda ykkur á það að viðbrögðin mín við fyrstu krullunni eru alveg ekta – ég var í alvörunni búin að vera að nota járnið bandvitlaust þar til ég horfði á kennslumyndband á youtube. Þetta var í fyrsta sinn sem ég sá hárrétta útkomu;) Mistökin sem ég gerði var að ég sneri hausnum á járninu vitlaust, ég misskildi myndina á járninu með leiðbeiningunum og fannst það ætti að snúa hinsegin.
Endilega kíkið á þetta, passið að myndbandið er dáldið leiðinlegt því það var alltaf að fókusa fram og tilbaka – mig langaði bara svo að sýna ykkur hvernig það virkar!
Hér sjáið þið svo hárið mitt reddí – þetta er sjálfsmynd svo því miður sést ekki allt hárið en ég lofa að koma með betri myndir sem fyrst. Þið getið smellt á myndirnar til að sjá þær stærri.
Eins og ég segi í myndbandinu þá er ég nú enginn hárgreiðslusnillingur heldur bara förðunarfræðingur. Þrátt fyrir það þá luma ég á ýmsum hártrixum sem ég hef sankað að mér í gegnum tíðina en ég lendi mikið í því að þurfa að sjá um hár líka í verkefnum. Ég efast ekki um að þetta járn muni koma sér vel í framtíðinni – sérstaklega við gerð næsta RMJ ;)
Vantar ykkur förðun fyrir kvöldið? Kíkið þá endilega til mín á Miðnæturopnun Kringlunnar í dag. Ég verð staðsett fyrir framan Lyf & Heilsu í Kringlunni – s.s. fram á gangi og mun bjóða uppá fríar farðanir sem kaupbæti þegar einhver kaupir að minnsta kosti annað hvort förðunarburstasettanna eða tvo staka bursta frá Real Techniques. Förðunin er í boði frá klukkan 15 í dag. En burstarnir eru allir á 20% afslætti í tilefni dagsins. Frábær afsökun til að kaupa þessa æðislegu bursta sem ég er búin að vera að lofa svo mikið undanfarið ;)
Ég verð að sjálfsögðu líka öllum sem þurfa aðstoð við að velja sér bursta innan handar en mér persónulega finnst þessir þrír burstar hér fyrir neðan alveg bráðnauðsynlegir – svona dags daglega;)
Þá er komið að næstu Real Techniques sýnikennsluvideoum – ég er búin að gera video fyrir alla burstana en það var ákveðið að pása aðeins birtinguna á þeim þar sem margir burstanna seldust upp á stuttum tíma. Nú er hins vegar komin ný sending í hús og verslanirnar sem selja burstana ættu að vera stútfullar!
Real Techniques burstana finnið þið í Hagkaupum, Lyfju, Kjólar og Konfekt og inná Heimkaup.is,
En að fjólubláu burstunum! Burstunum er skipt í flokka eftir litum á sköftum, ég er nú þegar búin að setja inn myndböndin um burstana með appelsínugulu sköftunum og næst eru það burstanir með bleiki sköftunum. Þessir með fjólubláu sköftunum eru til að gera fullkomnar augnfarðanir. Það er til burstasett sem inniheldur 5 mismunandi bursta og svo eru þrír stakir burstar. Endilega kíkið á myndböndin til að sjá hvernig ég mæli með því að þið notið burstana.
Starter Set – förðunarburstasett sem inniheldur fimm mismunandi bursta sem gera ykkur kleift að gera allar þær augnfarðanir sem ykkur dettur í hug! Ég valdi að sýna einfalda augnförðun þar sem ég nota alla burstana til að bera mjög skemmtilega augnskuggapallettu á augun.
Shading Brush – eini burstinn sem mér finnst vanta í burstasettið er þessi bursti. Ég nota alltaf svona flata augnskuggabursta til að bera augnskuggana á augun.
Fine Liner Brush – enn mjórri eyelinerbursti en sá sem er í Starter Set, þessi hentar í meiri nákvæmnisvinnu.
Lash-Brow Groomer – snilldarbursti sem hjálpar til við að gera fullkomnar augabrúnir og er besta og einfaldasta leiðin til að fá fullkomin, þétt og aðskilin augnhár.
Ég vona að þessi myndbönd hafi hjálpað ykkur – ég verð svo að kynna burstana í nokkrum vel völdum verslunum á næstunni allt fram til jóla. En þessir eru fullkomin jólagjöf að mínu mati fyrir allar konur sem farða sig. Ég læt ykkur vita bráðum af næstu kynningu sem er bara handan við hornið :)
Ég fékk að fylgjast með þegar línan sem Rihanna gerði fyrir MAC mætti í MAC verslunina í Kringlunni. Síðan það var tilkynnt að línan væri væntanleg hefur myndast mikill spenningur meðal íslenskra makeup skvísna. Af því það kom bara örlítið af hverri vöru var ákveðið að halda sérstaka opnun fyrir línuna – opnunin fór fram í gærkvöldi.
Það var búið að koma fyrir númerakerfi fyrir utan búðina þegar hún lokaði klukkan 18:30 í gær. Eftir lokun var línan tekin fram og vörunum komið fyrir bakvið kassann. Klukkan 19:00 opnaði búðin aftur og allt fór á fullt, nokkrar vörur kláruðust strax á fyrstu mínútunum. Það var ótrúlega gaman að fylgjast með stemmingunni sem myndaðist og að sjálfsögðu var Rihanna í botni!
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri!
Takk fyrir mig MAC skvísur – leyfi mínu „all time“ uppáhalds Rihönnu lagi að fylgja með…
Sýni ykkur svo þær vörur sem fengu að rata með mér heim úr þessari skemmtilegu línu bráðum.
Það er allt að gerast hjá snyrtivörumerkinu L’Oreal fyrir stuttu var tilkynnt að Lara Stone hefði gengið til liðs við merkið sem nýtt andlit þess og nú hefur enn ein skvísan bæst í hópinn. Í gær var tilkynnt að Blake Lively væri nýtt andlit merkisins sem er alls ekki amalegt. En Blake er líka andlit Gucci Premiere ilmsins – þið getið lesið allt um það samstarf í nýjasta tölublaði Reykjavík Makeup Journal.
“I am thrilled and honoured to join the incredible women who represent L’Oréal Paris – from the versatile and motivational brand ambassadors, to all the women who proudly wear L’Oréal Paris each day. I grew up with the inspiration of their message, ‘We’re worth it’. What an important value to instill in women. That beauty is rooted in confidence. That is key. That is why I’m so proud to be a L’Oréal Paris woman.”
Nú þegar hafa birst tvær kynningarmyndir frá L’Oreal af leikkonunni. Annars vegar er það mjög rokkuð og skásett smoky augnskygging og hins vegar meira bohemian lúkk. Báðar myndirnar eru í svarthvítu sem mér finnst frekar smart. Yfirmenn hjá L’Oreal virðast líka vera í skýjunum með nýju fyrirsætuna en Chyril Chapuy forstjóri L’Oreal hafði þetta um málið að segja:
“Blake embodies all the modern codes of Hollywood glamour. She has become a beauty icon for a whole generation with her gorgeous gold-dipped hair, luminous gaze and drop-dead smile. Today, this strong, charismatic and definitely glowing actress is joining the L’Oréal Paris family. And we’re so proud to welcome her.”
Frábærar fréttir fyrir þetta klassa merki. Líka skemmtileg tímasetning þar sem það er nú ekki langt síðan það var tilkynnt að samleikkona hennar í þáttunum Gossip Girl, Leighton Meester væri nýtt andlit Biotherm. Það er greinilega líf eftir Gossip Girl.
Ég mælti mér mót við Guðmund Jörundsson á skrifstofu hans á Laugaveginum í gærmorgun. Ég er ein af þeim sem bíð spennt eftir því að kvennlínan sem var frumsýnd á síðasta RFF mæti í verslanir og mig langaði bara að tékka á því hver staðan væri á línunni. Mér fannst upplagt að leyfa nokkrum myndum sem ég tók á hátíðinni bæði á sýningu JÖR og af stemmingunni baksviðs fyrir hana fylgja með færslunni.
Brot af línunni er nú þegar komið í hús, en það eru yfirhafnirnar sem hvíla á fallegum JÖR herðatrjám uppá skrifstofu merkisins sem er nokkrum hæðum fyrir ofan verslunina. Þar bíða þær þess að komast niður í verslun þegar restin af sendingunni er komin. Ef ég ætti að velja eitt lýsingarorð til að lýsa yfirhöfnunum þá yrði það að þær eru veglegar. Þær eru úr ótrúlega flottum efnum sem ég efast ekki um að verði endingagóð, þær eru hlýjar og þær eru klæðilegar. Ég fékk að máta eina kápuna sem var aðsniðin og klæðileg – hún er komin á óskalistann. Ég sýni ykkur hana seinna…
Kvenlína JÖR vakti mikla lukku á RFF sem fór fram fyrr á árinu en ásamt henni er væntanleg ný lína frá JÖR í verslunina – undirlína. Með þeirri línu langar aðstandendum JÖR að geta boðið uppá meira úrval og um leið finnst þeim þau á ákveðinn hátt öðlast þá meira frelsi til að gera línuna sjálfa eins og þau vilja hafa hana. Undirlínan er ekki gerð með það í huga að vera ódýrari útgáfa af línunni sem er væntanleg heldur til að ná til mun breiðari hóps. Þetta verða einfaldari flíkur, sumar þeirra eru innblásnar af nýjustu línu JÖR aðrar eru sjálfstæðar. Guðmundur segir þau stefna á að undirlínan verði á góðu verði svo sem flestir muni ná að eignast flík frá JÖR. Þó svo undirlínan verði úr ódýrari efnum þá segir Guðmundur að þetta séu mjög flott efni engu að síður. Línurnar munu allar koma undir nafninu JÖR en þær verða líklega aðgreindar með ólíkum merkingum.
Það er mjög algengt að fatamerki sendi frá sér undirlínur sbr. Alexander McQueen og McQ by Alexander McQueen og svo hjá ódýrari merkjum eins og Second Female sem er með undirlínuna First Female. Svo þetta er virkilega skemmtileg þróun hjá þessu íslenska tískuhúsi – er það ekki besta lýsingin á JÖR.
Samhliða þessu munu svo ný merki koma í sölu í versluninni t.d. merki sem bjóða uppá töff fylgihluti, dásamlegan undirfatnað og kósý knitwear. Ég fékk að gægjast í lookbook frá þessum merkjum og ég er orðin spennt að sjá þetta allt saman. Mér finnst eiginlega upplagt að hvert merki fái að njóta sín í sér færslu – þetta eru allt merki sem ég hef ekki heyrt um áður en hún Hrafnhildur Hólmgeirs sem er listrænn stjórnandi merkisins hefur valið merkin vandlega inní verslunina. Hrafnhildur er með alveg einstakan stíl og ég efast ekki um að íslenskar konur verði hrifnar af merkjunum.
Ef þið hafið ekki enn kíkt við í JÖR sem er staðsett ofarlega á Laugaveginum í hluta gamla 17 hússins þá er upplagt tækifæri að gera það núna. Búðin mun taka þátt í Airwaves hátíðinni með því að bjóða uppá off venue tónleika.
Þeir fyrstu hefjast í dag klukkan 16:00 – en það er hljómsveitin Japam sem ríður á vaðið og klukkan 17:00 tekur svo Sykur við. En dagskránna í heild sinni finnið þið HÉR. Ég er alveg viss um að það muni myndast skemmtileg stemming inní versluninni – ég stefni á að kíkja við á fimmtudaginn og hlusta á Retro Stefson.
Fylgist með fleiri fréttum af JÖR hér á RFJ innan skamms ;)