fbpx

Christina strikes again

Ég Mæli MeðIlmirInnblásturJólagjafahugmyndir

Ég skrifaði um ilmina hennar Christinu Aguilera í byrjun ársins að því tilefni að merkið hennar var valið sem besta „Celebrity Brand“ ilmvatnsmerkið – færsluna finnið þið HÉR. Núna er kominn nýr ilmur frá henni í verslanir sem nefnist Unforgettable.

Ilmurinn á að passa uppá það að gera okkur sem erum með hann ógleymanlegar. Hann fangar augnablikin sem enginn vill gleyma og er fullkominn til að passa uppá að jú sá sem þið viljið ekki að gleymi ykkur – geri það ekki. Þaðan er nafnið á ilminum komið.

„Leave an impression that will endure forever.“ 

1051302Flaskan er í samræmi við fyrri ilmvötnin hennar Christinu og mér finnst áferðin á flöskunni virkilega skemmtileg en það er í alvörunni eins og hún sé umvafin blúndu – líka umbúðirnar utan um ilminn. Það eru nákvæmlega svona smáatriði sem ég hef gaman af varaðandi ilmvötn. Þetta smáatriði finnst mér strika undir það að ilmurinn er einstaklega kvenlegur og kannski dáldið rómantískur. En hugsunin á bakvið ilminn finnst mér líka dáldið rómantísk. Ilmurinn samanstendur af:

  • Toppurinn: plómur og ástaraldin
  • Miðjan: jasmín og tyrknesk rós
  • Grunnurinn: kasmír og vanillamaxresdefault

Í myndbandinu hér fyrir neðan getið þið skyggnst á bakvið tjöldin þegar auglýsingin fyrir ilminn var tekin upp. Þar segir Christina líka aðeina meira frá ilminum og innblástrinum á bakvið hann. Það er ótrúlega gaman að hlusta á Christinu tala um ilminn og ástæðurnar sem liggja að baki þess að hún ákvað að gera hann. Einnig er viðtal við Mark Liddell ljósmyndara sem sá um að gera herferðina fyrir ilminn. Hann lýsir því að hann hafi viljað gera herferð í takt við sýn Christinu og sem væri ólík þeim sem hafa komið áður.

„Moments that are truly unforgettable“

Þetta er klárlega ilmur sem þið ættuð að hafa í huga í jólapakkann fyrir skvísuna í fjölskyldunni:)

EH

Angelica Blick

Skrifa Innlegg