#Sneakerball_RVK var haldið í Gamla Bíó í gær þar sem aðeins ein regla var fyrir inngöngu: Nike skór
Ég kom við í H Verslun fyrir helgi þar sem mig langaði í nýja sneakers fyrir kvöldið. Ég á nokkra Nike street skó og verða þeir oftar en ekki fyrir valinu dagsdaglega enda eru þægindin gríðarleg – svona fyrir utan það að þeir eru allir svo flottir ;)
Ég var búin að hafa augun á Nike MayFly Woven sem eru nýlega komnir í H Verslun en þeir hafa verið áberandi undanfarið á instagram og tískubloggum. MayFly voru hannaðir með það í huga að endurgera maraþon skó sem mér finnst skemmtileg pæling. Þeir eru bara til í einum lit hér heima (eins og er a.m.k.) en mér finnst hann sjúklega flottur og valdi mér þessa týpu. Ég er mega ánægð með þá!
xx
Fjaðrajakki: keyptur í Kaupmannahöfn
Rúllukragi: Missguided
Leðurbuxur: Balmain x hm
Veski: Chanel Boy
Skór: Nike MayFly Woven
xx
xx
Birgitta Líf
instagram&snapchat: birgittalif
Skrifa Innlegg