UPPFÆRT
Ég er búin að draga út vinningshafa af handahófi með hjálp random number generator. Anna Björt Sigurðardóttir var dregin og eignast þetta fallega sett frá BAST. Takk allir fyrir þátttökuna xx
Anna Björt vinsamlegast sendu mér skilaboð á Facebook, instagram eða birgittalif@trendnet.is til að nálgast vinninginn.
Það er komið að virkilega fallegum gjafaleik hjá mér sem ég er búin að vera mjög spennt fyrir að deila með ykkur!
Í haust opnaði BAST – ný lífsstílsverslun á 1. hæð í Kringlunni. BAST er með fjölbreytt úrval af fallegri heimilis- og gjafavöru þar sem skandinavísk hönnun er áberandi. Sjálf hef ég mikinn áhuga á fallegum hlutum fyrir heimilið og er dugleg að safna mér í búið. BAST er strax orðin ein af mínum uppáhaldslífsstílsverslunum og er það einna helst vegna þess að þar fást vörurnar frá Bitz Living. Í samstarfi við BAST langar okkur að gefa einum heppnum lesanda veglegan pakka frá Bitz xx
Ég fór í BAST í vikunni og valdi vörur í gjafaleikinn. Ég hugsaði pakkann þannig að hann henti þeim sem eru að byrja að búa eða safna í búið og því er tvennt af hverjum hlut í stell – þó svo að allir geti að sjálfsögðu tekið þátt sem hafa áhuga á að eignast þessa fallegu hluti! Bitz er hönnun danska næringafræðingsins Christian Bitz og það er skemmtileg hugsun á bakvið alla hlutina í línunni, t.a.m. stærð diska út frá ráðlögðum skammti o.þ.h.
Gjöfin samanstendur af:
- 2x Bitz diskum
- 2x Bitz skálum
- 1x Bitz eldfast mót
- 2x Bitz göfflum
- 2x Bitz hnífum
- 2x Bitz skeiðum
- Servíettupakka
- Súkkulaði
Til að taka þátt:
1. Fylgið @bast.kringlan á instagram
2. Deilið þessari færslu
3. Skiljið eftir komment hér að neðan með fullu nafni
Svo einfalt er það! (Ath. að það þarf að uppfylla öll skilyrðin til að komast í pottinn)
Dregið verður föstudaginn 22. desember
xx
Birgitta Líf
instagram & snapchat: birgittalif
Skrifa Innlegg