fbpx

RFF°4

FashionÍslensk HönnunMACMyndirRFF

Mikið er ég farin að verða spennt fyrir RFF sem er nú búið að gefa út að muni fara fram dagana 14.-16. mars. Í ár verður RFF haldin á sama tíma og Hönnunarmars svo hér verður sannkölluð tískuhátíð og án efa nóg að gera hjá okkur Trendnetingunum. Ég er alla vega komin með brjóstapumpu og til i fjörið – í versta falli tek ég Rachel Zoe á þetta og mæti bara með Tinna enda þarft að kynna frumburðinn sem fyrst fyrir heiminum og umhverfinu sem mamma hans þrífst best í.

Hátíðin fannst mér heppnast ótrúlega vel í fyrra – fyrsta hátíðin sem ég tók almennilega þátt í, reyndar bara sem áhorfandi – svo ég er sérstaklega ánægð að sjá að hún Þórey Eva Einarsdóttir hafi ákveðið að halda áfram sem framkvæmdastjóri hennar. Nú er bara spennandi að sjá hvernig fyrirkomulagið á sýningunum verður og sérstaklega hverjir verða að sýna!

Hér eru nokkrar myndir frá hátíðinni í fyrra en þá fékk nýja myndavélin fyrst almennilega að njóta sín – en ég er samt miklu klárari núna svo myndirnar í ár verða ennþá betri…..;)

Mér finnst líka svolítið krúttlegt að sonur minn sem liggur svo friðsæll í vöggunni sinni við hliðiná mér þessa stundina var lítil baun í maganum á mér á myndunum hér fyrir ofan <3

EH

Gersemi!

FallegtFashionLífið MittMeðgangaTinni & Tumi

Vá hvað mig langar að stökkva út og næla mér í þetta fallega 20’s höfuðskraut bara núna!! Fæst í 9 Líf í ATMO og það er svo sannarlega gersemi.

Annars er lífið þessa dagana alveg himneskt. Mér finnst ég eiga heimsins fallegasta og yndislegasta 6 daga barn í heimi. Tinni litli svaf í 9 tíma í nótt og foreldrarnir vöknuðu skelfing lostin þegar þau áttuðu sig á því. Ég hef ekki sofið svona lengi samfellt síðan á miðri meðgöngu svo dagurinn í dag var dásamlegur – þónokkrar heimsóknir sem var gott að vera úthvíld fyrir þá nær maður að njóta þeirra aðeins betur. En ég læt heyra í mér svona stöku sinnum hér á RFJ næstu daga – ég hef ákveðið að reyna að nýta tímann framundan sem mest í það að vera með syninum og barnsföðurnum því eins og allir segja að þá er þetta tími sem kemur aldrei aftur <3 <3 <3

Þessi mynd er komin sem forsíðumynd inná Facebook hjá mér – hafið þið séð krúttlegri tær – dásamleg mynd sem frænka mín tók…

EH

30.12.12

ÁramótFallegtLífið MittMeðganga

Fallegi strákurinn okkar Aðalsteins kom í heiminn um 10 leytið í morgun eftir erfiða fæðingu. Við erum svo hamingjusöm með Bumba okkar sem hefur fengið nafnið Tinni – nafnið var komið um leið og við fengum að vita kynið svo það er dásamleg tilfinning að geta sagt það loksins upphátt. Strákurinn var rúmar 17 merkur sem ætti ekki að koma á óvart miðað við kúlustærð.

Besti endir á árinu 2012 sem ég hefði getað óskað mér!!! Takk fyrir lesturinn á árinu sem er senn að líða hlakka til að heyra í ykkur aftur á nýju ári þangað til tek ég mér smátíma til að gróa – þó svo það sé eflaust stutt þar til næsta sýnikennsla komi í hús ef ég þekki sjálfa mig.

EH

Þær Best Klæddu 2012

ÁramótFashionStíll

Það er algengt að tískumiðlarnir gefir út lista yfir þær stjörnur sem þeim fannst bera af í klæðaburði á árinu sem er senn að líða. Ég lagði hausinn í smá bleyti og þetta er niðurstaðan hjá mér – ég er samt eflaust að gleyma ansi mörgum en það er víst ekki endalaust pláss;)

Diane Kruger er að mínu mati best klædda kona ársins 2012 – kjólarnir sem hún klæddist á Cannes verðlaunahátíðinni voru hver öðrum fallegri. Kjólunum á myndinni klæddist hún á tískuvikunni í París alltaf elegant og stílhrein og með smáatriðin á hreinu – eins og rauðu táneglurnar á myndinni til vinstri.

Marion Cotillard er ein af mínum uppáhalds leikkonum og þessi talskona Christian Dior er alltaf vel til fara.

Gwynteh Paltrow finnst mér hafa blómstrað í klæðaburði undanfarin 2-3 ár og árið í ár var sérstaklega gott, á myndinni er hún í kjól frá Prada.

Elizabeth Olsen, litla Olsen systirin er farin að slá út systur sínar þegar kemur að klæðaburði, hún er aðeins öruggari í klæðavalinu og gerir sjaldan/aldrei mistök.

Victoria Beckham er einfaldlega bara með þetta hvort sem hún klæðist sinni eigin hönnun eða annarra manna!

Camille Belle, unga leikkonan sem er þekktust fyrir að leika í þessum týpísku unglingamyndum kom á óvart í klæðaburði í ár og var oftast nefnd á nafn á listum yfir best klæddu konurnar á þeim hátíðum sem hún mætti á. Þessum kjól frá Ralph Lauren klæddist hún á Met Galanu fyr á árinu.

Cara Delevingne best klædda og flottasta fyrirsætan verður að vera á listanum mínum, það kemur bara alls ekkert annað til greina – hún er líka svo skemmtilegur karakter alla vega á myndunum af henni.

Þessar tvær finnst mér bara verða að vera á listanum. Alexa Chung og Kate Moss eru venjulega undantekningalaust með þetta. Dragtin hennar Alexu er æðisleg – svona langar mig í – alveg möst fyrir næsta sumar!

Er einhver sem ykkur finnst ég greinilega hafa gleymt eða eruð þið sammála?

EH

Ljómandi Augu & Kinnar

ÁramótlorealmakeupMaybellineShiseidoSmashboxSýnikennsla

Hér sjáið þið vörurnar sem ég notaði…..

  • Byrjið á því að setja ljósasta litinn í pallettunni yfir allt augnlokið – dreifið vel úr litnum þar til hann er alveg búin að samlagast augnlokunum ykkar.

  • Setjið miðjulitinn yfir allt augnlokið uppað globuslínunni og blandið honum saman við þann ljósa.

  • Setjið dekksta litinn í pallettunni yst og innst á augnlokin.

  • Blandið litunum saman til að koma í veg fyrir að það verði skýr litamunur. Notið burstann sem þið notuðuð til að blanda litunum saman til að setja augnskugga meðfram neðri augnhárunum – þannig fáið þið svipaðan lit undir augun og rammið augun ennþá betur inn og komið í veg fyrir að það verði of mikill litur undir augunum.

  • Setjið þykka og litmikla eyelinerlínu meðfram efri og neðri augnhárunum – smudgeið vel úr línunum svo þær mýkist og blandist saman við augnförðunina. Setjið litinn líka í vatnslínuna.
  • Takið svo ljósasta litinn og bætið smá innri augnkrókinn.

  • Svo er það maskarinn – mér finnst alltaf svo gaman að sjá muninn á augnförðuninni eftir að maskarinn er kominn á hann gerir svo mikið, finnst ykkur ekki?

  • Varaliturinn sem ég valdi við er uppáhalds varaliturinn minn frá Maybelline og ef hann hætti einhver tíman þá fer ég að hágráta – hann heitir Delicate Coral og er ljóskóralbleikur. Hann er hinn fullkomni sumarlitur en hann er með svo fallegum sanseruðum glansi að mér fannst hann passa voða vel við þessa förðun.
  • Setjið highlighter púðrið ofan á kinnbeinin og ekki vera hræddar við að setja extra mikið – þetta er eini dagurinn á árinu sem extra mikið er passlegt!

Svo yrði næsta skref að skella á sig gerviaugnhárum og að sjálfsögðu ennþá meiri maskara! Sjá HÉR

EH

Innblástur fyrir Áramótin

ÁramótInnblásturmakeupMakeup Tips

Áramótin eru á næsta leiti og hér eru nokkrar hugmyndir úr tískuheiminum að flottri förðun – nóg af hugmyndum sem henta öllum.

  • Fáið innblástur frá tískuhúsunum – notið tækifærið og prófið að vera með extra blá augnhár ef þið eruð ekki búnar að prófa eins og hjá Stellu McCartney. Svo finnst mér þessi förðun hjá Cavalli (hægra megin) alveg æðisleg – minnir helst á páfuglafjaðrir.

  • Svart smoky er svona go to makeup hjá lang flestum skvísum á áramótunum – en það getur líka verið skemmtilegt að breyta til og gera það kisulegra og sleppa því að setja svartan lit meðfram neðri augnhárunum. Ef þið viljið gera eins og á myndinni til hægri þá mæli ég með því að þið mótið fyrst umgjörðina með svörtum eyelinerblýanti og fyllið síðan inní eða setjið yfir með svörtum augnskugga. Svo finnst mér þessi HÉR fullkomið áramótaförðun.

  • Ekki vera hræddar við að nota og blanda saman ólíkum litum – munið bara að ef þið viljið gera svipað og á myndinni til vinstri þá er fallegast að má út skilin á milli litanna svo þeir blandist svona fallega saman – þá virðast litirnir heldur ekki svo áberandi allt í einu ekki hver og einn alla vega bara saman.

  • Ég get alltaf fengið innblástur úr þessum flotta myndaþætti sem Lisa Eldridge gerði – fyrirsætan er Frida Gustavsson og myndirnar einkennast af fallegum litum, stjörnum og pallíettum!

  • Glimmer er alltaf viðeigandi um áramótin en munið að vera alltaf með límband við höndina til að taka glimmerið sem fer útfyrir. Festir fyrir glimmer fæst í flestum pro makeup búðum hér en sjálf hef ég mikið notað duo lím (best ef þið eruð að líma pallíettur og steina), blauta augnskugga eða jafnvel gloss til að festa glimmer.

  • Mér fannst gaman að hafa svona kreisí myndir með en ég mæli með því að þið farið varlega í þetta – með svona rosaleg augnhár minnkar sjónsviðið og það er leiðinlegt að vera að týna glimmer úr augunum allt kvöldið. Svo getur reynst erfitt að fá áramótakossinn eða jafnvel óþæginlegt með svona mikið af pallíettum á vörunum.

EH

Þau treysta á okkur!

Áramót

Ljósmyndari: Daníel Freyr Atlason
Stílisti: Sara Jónsdóttir
Myndbandsupptaka: Besti
Förðun: ég
Hjálparsveitarmaður: Starakaður Hróbjartsson – Hjálparsveit Skáta

Fyrir rúmu ári síðan farðaði ég fyrir þessa flottu auglýsingu hjá 66°N þar sem þau hvetja fólk til að styðja hjálparsveitirnar okkar. Hjálparsveitirnar fá langmest af sínum fjármunum útúr flugeldasölunum og því er um að gera að styðja við bakið á þeim því þær eru alltaf til staðar fyrir okkur.

Pabbi minn er mikill flugeldakall og hann og bróðir minn safna flöskum allt árið til sem standa undir flugeldainnkaupum þeirra – þá þurfa þeir ekki að hafa samviskubit yfir að sprengja upp eins mikið og þeir gera. Aðalsteinn fékk síðan bakteríuna á síðasta ári og það fór dágóður tími í að sprengja allt þetta upp og við eigum ennþá afgang! En ég viðurkenni nú svo sem að mér finnst líka ótrúlega gaman af þessu svo ég hvet Aðalstein frekar áfram við kaupin en að stoppa hann af. Ég er farin að hlakka til að mæta á sölustað Flugbjörgunarsveitarinnar og eyða smá pening um helgina – í gott málefni að sjálfsögðu!

EH

Sýnikennsla – Gerviaugnhár

ÁramótDiorSýnikennsla

Hér fáið þið smá sýnikennslu á því hvernig mér finnst best að setja á mig gerviaugnhár. Ef þið setjið þau rétt á þá eiga þau ekki að pirra ykkur, þið eigið ekki að finna fyrir þeim allt kvöldið. Ég ákvað að nota bara frekar eðlileg augnhár í sýnikennsluna en ég hvet ykkur til að ganga kannski aðeins lengra. Lengi vel var mín “djammförðun” alltaf bara gerviaugnhár og eyeliner – og því stærri augnhár því betra. Make Up Store hefur oftast boðið uppá flott úrval af ýktum augnhárum:)

Byrjið á því að setja maskara á augnhárin bæði efri og neðri – þið getið alveg sleppt því en mér finnst flott að vera með nóg af maskara svo ég geri það alltaf – það getur samt auðveldað ásetninginn að vera búin að setja smá maskara á augnhárin, þau verða aðeins meðfærilegri.

Hér sjáið þið augnhárin sem ég notaði – ég notaði síðan límið sem fylgdi með það er mjög sterkt og glært. Reyndar finnst mér líka gott að vera með DUO límið – þetta með bláu stöfunum – við höndina. Það er svolítið skrítin lykt af því en mér finnst nauðsynlegt að vera alltaf með eitt í snyrtibuddunni því það endist mjög lengi og fer vel.

Byrjið á því að mæla augnhárin við augun ykkar og klippa þau til ef þau eru t.d. of löng. Munið að klippa alltaf af endanum sem á að fara fjær á augnlokið – á flestum augnhárum er nefninlega búið að móta hárin þannig að þau séu styttri á endanum sem á að fara í innri augnkrókinn svo þau séu eins náttúruleg og hægt er.

Þegar þið eruð ánægðar með stærðina á augnhárunum berið þá límið á röndina sem límist við augun ykkar. Ekki setja of lítið af lími og ég set alltaf extra mikið á sitthvorn endann því oft vill hann stingast út og getur meitt. Leyfið líminu að þorna í smástund á hárunum. Ég miða alltaf við að byrja á því að klippa annað augnhárið til setja lím á það og svo klippi ég hitt og set lím á það – þá er límið á fyrra augnhárinu orðið passlega þurrt svo ásetningurinn verður mun einfaldari. Það er svo leiðinlegt að þurfa að halda augnhárinu niðri á meðan það nær taki svo poppar það upp og þá fer kannski lím útfyrir og þið þurfið að byrja á því að laga augnförðunina…

Þið getið bæði notað fingurna eða plokkara til að setja augnhárin á. Þegar ég set á sjálfa mig nota ég vanalega bara fingurna en ef ég er að farða þá nota ég plokkara – aðeins hreinlegra.

Þegar augnhárin eru komin á sinn stað reynið þá að klípa þau saman við ykkar svo þau séu alveg uppvið hvert annað. Bætið svo við maskarann – ég mæli með að þið notið frekar mikið – hér notaði ég Dior Exstase maskarann.

…. og voila! Augnhárin eru klár og ættu ekki að haggast allt kvöldið.

Góða skemmtun á áramótunum:)

EH