fbpx

Gersemi!

FallegtFashionLífið MittMeðgangaTinni & Tumi

Vá hvað mig langar að stökkva út og næla mér í þetta fallega 20’s höfuðskraut bara núna!! Fæst í 9 Líf í ATMO og það er svo sannarlega gersemi.

Annars er lífið þessa dagana alveg himneskt. Mér finnst ég eiga heimsins fallegasta og yndislegasta 6 daga barn í heimi. Tinni litli svaf í 9 tíma í nótt og foreldrarnir vöknuðu skelfing lostin þegar þau áttuðu sig á því. Ég hef ekki sofið svona lengi samfellt síðan á miðri meðgöngu svo dagurinn í dag var dásamlegur – þónokkrar heimsóknir sem var gott að vera úthvíld fyrir þá nær maður að njóta þeirra aðeins betur. En ég læt heyra í mér svona stöku sinnum hér á RFJ næstu daga – ég hef ákveðið að reyna að nýta tímann framundan sem mest í það að vera með syninum og barnsföðurnum því eins og allir segja að þá er þetta tími sem kemur aldrei aftur <3 <3 <3

Þessi mynd er komin sem forsíðumynd inná Facebook hjá mér – hafið þið séð krúttlegri tær – dásamleg mynd sem frænka mín tók…

EH

Burberry SS 2013 - Herferð

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Sunna

    5. January 2013

    Hæ Erna!

    Ég er svona laumulesandi, sem fer huldu höfði og kommentar ekki – en nú stíg ég fram úr skuggunum… Til hamingju með krúttlegu tærnar og eiganda þeirra! Eins gaman og mér finnst að fylgjast með þér hér segi ég bara: njóttu! Ég á 11 vikna strák og ég er hreinlega að paníkera yfir því hvað tíminn líður hratt. Hann er orðinn svo stór!

    Og níu tímar? Vá!

    Kveðja, ein sem hefur ekki sofið lengur en fimm tíma samfleytt síðan í sumar en er samt ekkert bitur… :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      6. January 2013

      Takk kærlega fyrir og til hamingju sömuleiðis:D En já við erum voða heppin með þessar svefnvenjur hans – svaf aftur svona í nótt;):)