Mig langar að byrja á því að þakka öllum þeim lesendum sem hafa á síðustu dögum tjáð mér hvað þeir hafa saknað mikið innleggjanna minna hér á síðunni – en RMJ gengur ótrúlega vel þrátt fyrir mín veikindi og Tinna Snæs. Svo það styttist í endurkomu mína hingað af fullum krafti. Get eiginlega ekki beðið eftir því – það er svo mikið sem ég þarf að fara að skrifa um – litinn er orðinn endalaus!
Ég tek mér þó leyfi til að pósta sýnikennslumyndböndunum sem ég er búin að gera fyrir Real Techniques. Þið hafið nú þegar séð það fyrsta HÉR og hér koma svo næstu fjögur…
Í þetta sinn eru þetta allt myndbönd með RT burstum sem eru með appelsínugulu skafti. En þeir burstar henta vel fyrir grunnfarðanir. En endilega horfið á myndböndin til að læra meira um þessa einstöku bursta!
Expert Face Brush – þetta er uppáhalds burstinn minn, must have í allar snyrtibuddur. Horfið á myndbandið til að sjá hvernig ég nota burstann.
Core Collection – förðunarburstasett sem inniheldur 4 mismunandi bursta.
Powder Brush – æðislegur og risastór púðurbursti sem hentar vel til að setja púður yfir allt andlitið.
Foundation Brush – flatur farðabursti, mér finnst nauðsynlegt að eiga einn svona. Þessi er frábær í t.d. fljótandi farða.
Ég vona að þessar sýnikennslur hjálpi ykkur og ég hvet ykkur til að kíkja á burstana í Hagkaup, Lyfju, Kjólar&Konfekt eða HÉR inná Heimkaup.is. Vöruúrvalið getið þið séð HÉR inná Facebook síðu burstanna.
Af og til detta í fangið á mér ótrúlega skemmtileg verkefni – eitt af þeim er að vera með förðunarkynningu á nýjungum frá snyrtivörumerkinu Shiseido í versluninni Vila í Kringlunni í kvöld.
Þó svo það vanti einn staf í nafnið mitt þá verð ég þarna;) Hlakka til að sjá sem flesta – munið að smella like á facebooksíðu Vila fyrst – þið finnið hana HÉR.
Sýni ykkur svo myndir frá stemmingunni seinna – var að fá æðislega nýja Canon vél til að prófa. Mér líst ótrúlega vel á hana – ég er sjálf með Sony Nex vél en þessi frá Canon er sko ekki síðri!
Þegar ég sagði frá því á síðunni minni að Real Techniques burstarnir væru væntanlegir til landsins – HÉR – lét ég líka vita af því að ég væri búin að vera að vinna mjög skemmtilegt verkefni í tengslum við burstana. Ég er búin að gera sýnikennslumyndbönd fyrir alla burstana sem ég mun sýna ykkur smám saman á næstu dögum. Samtals eru þetta 11 sýnikennslumyndbönd þar sem þið fáið að sjá hvernig þið getið notað burstana.
Ég hef fengið mikið af fyrirspurnum um förðunarbursta, hvaða burstum ég mæli með og hvernig ég nota þá og nú kemur loksins efni tengt förðunarburstum inná síðuna. Þó fyrr hefði nú verið!
Hér fyrir neðan sjáið þið fyrsta myndbandið sem ég gerði fyrir Real Techniques en þar segi ég frá burstunum. Ef þið vitið lítið sem ekkert um þessa bursta þá fáið þið góða fræðslu hér…
Ef þið eruð farin að sakna mín hér á RFJ þá get ég sko sagt ykkur það að ég dauðsakna þess að skrifa inná síðuna mína. Þessa daga á Reykjavík Makeup Journal hug minn og það styttist óðum í útgáfudaginn. Núna fara dagarnir mínir í að skrifa, pæla í uppsetningu, finna myndir, fara á fundi…. ég er samt í essinu mínu og get ekki beðið eftir að fara að sýna ykkur afraksturinn.
Á næstu dögum mun ég þó líta við einungis til að birta næstu sýnikennslumyndbönd. HÉR finnið þið Facebooksíðu burstanna og þá getið þið keypt í Lyfju og Hagkaup sem bjóða uppá hluta af úrvalinu og HÉR inná heimkaup.is finnið þið alla burstana en þeir eru einnig fáanlegir í Kjólar&Konfekt.
Ég veit ég á að vera í bloggpásu en ég réð ekki við mig um að birta hérna eina örstutta færslu. En Real Techniques burstarnir eru mættir til landsins og þið getið keypt þá núna í t.d. Kjólar&Konfekt á Laugaveginum – verslunin er staðsett beint á móti gamla 17 húsinu.
En meira um burstana, úrvalið og hvernig þið getið notað þá seinna… ;)
Nei nú er mér allri lokið – hér er að mínu mati mætt flottasta samstarf H&M við fatahönnuð. Ég var búin að plana það að fara erlendis til að ná mér í flíkur úr línunni – ég verð að gera það núna eða senda eina fyrir mig í verslunarleiðangur!!
Lookbook myndunum fyrir línuna var lekið inná netið í gær – loksins segi ég nú bara;)
“I thought this was a good opportunity to say, ‘That belongs to me’,” sagði Isabel Marant í samtali við breska Vogue um samstarf sitt og H&M. Henni fannst að þetta væri hennar tækifæri til að tryggja það að eftirlíkingar af hennar fötum væru gerðar eftir hennar stöðlum.
Áður höfðu eingungis verið birtar 2 myndir af línunni en nú fáum við loksins að sjá fleiri. Hér sjáið þið að buxur eru í aðalhlutverki – ég verð að eignast einar slíkar, það eru eflaust fleiri sammála mér í því. Ástæðan fyrir því að mér finnst þetta vera flottasta samstarfið er sú að þetta eru allt mjög klæðilegar flíkur og ekki of mikið „out there“ – og það er mikið notagildi í hverri flík. Þær smellpassa inní H&M og hönnuðurinn hefir einmitt lagt áherslu á það að skapa gæðavöru sem allar konur geta notað. Þetta er mikið af stökum flíkum en ekki kjólum eins og svo oft áður.
Ég bilast það er bara þannig – þessar flíkur eru meðal annars á óskalistanum mínum…
Síða jakkapeysan og leðurbuxurnar vantar reyndar á þennan lista…
Ég er mikill aðdáandi fljótandi farða og er sífellt spurð útí það hver er sá sem er í mestu uppáhaldi. Þetta er spurning sem mér finnst mjög erfitt að svara – auðvitað á ég mér kannski einhvern uppáhalds sem ég nota á mig en hann nota ég endilega ekki þegar ég er að farða fyrir auglýsingar og myndatökur. Ég á mér uppáhalds farða fyrir nánast öll tilefni hvort sem það er fyrir mig eða aðra.
Sem förðunarbloggari þá er ég alltaf að prófa eitthvað nýtt til að meta og kynna fyrir ykkur lesendunum en í staðin fyrir að vera alltaf að segja frá þessu nýja ákvað ég að gera eina færslu til að segja frá þeim förðum sem ég nota aftur og aftur. Nú þegar sólin fer lækkandi viljum við íslenskar konur fara dáldið í það að setja meira á húðina heldur en á sumrin. Ef þið eruð óvanar því að vera með farða er gott að byrja rólega og velja léttari farða.
Hér sjáið þið mína uppáhalds farða, afhverju þeir eru í uppáhaldi og fyrir hvaða húðtýpur mér finnst þeir henta. Það er nefninlega sjaldgæft að allir farðar henti öllum eins og margar auglýsingar segja til um ;)
HÉR sjáið þið meira um Invisible Fluid farðann frá Estée Lauder.
HÉR sjáið þið meira um Lumi Magique línuna frá L’Oreal.
Ég hef áður skrifað um fljótandi farða – það eru þó komin yfir 2 ár síðan svo ég ætla að leyfa mér að stela smá punktum úr þeirri færslu og birta aftur hér á síðunni…
Þegar ég ber á mig sjálfa farða þá nota ég alltaf hendurnar af því þá finnst mér koma fallegasta áferðin því ég get svo vel stjórnað því hvernig farðinn er. En þegar ég er að farða þá nota ég alltaf farðabursta það finnst mér bara hreinlegra. Svo mæli ég samt með því að þegar þið eruð búnar að bera á ykkur farðann að strjúka aðeins yfir andlitið með hreinum höndunum til að koma í veg fyrir að það myndist smá misfellur. Munið svo að setja alltaf smá farða á hálsinn – til að koma í veg fyrir grímu – og á eyrun – því þau vilja oft verða rauðari en húðin er.
Eitt það nytsamlegasta sem ég lærði í förðunarskólanum var listin að blanda saman farða til að fá hinn fullkomna lit. Það er t.d. mjög sniðugt að eiga alltaf til hjá sér einn ljósan og einn dökkan farða, því á sumrin þá dökknar húðin okkar að sjálfsögðu og í staðin fyrir að þurfa kannski 2-3 yfir sumarið að kaupa nýjan farða þá kaupið þið einn frekar dökkan og blandið við ykkar ljósa sem þið eigið síðan í vetur. Sparar pening og farða.
Þegar þið eruð að velja ykkur lit á farða munið þá að fara alltaf eftir ljósasta litnum í húðinni svo liturinn passi fullkomlega við húðina og til að koma í veg fyrir að það sjáist of vel að þið séuð með farða. Prófið litinn alltaf á kjálkabeininu til að finna lit sem passar andlitinu og hálsinum.
Vegna Reykjavík Makeup Journal þá verð ég að leyfa mér það að láta eina færslu á dag duga – kannski 2 stuttar;) En ég reyni að hafa þær allar góðar og ítarlegar svo þið fáið þó helling útúr því að kíkja hér inná hverjum degi.
Með þessari færslu langaði mig að koma til móts við þær sem hafa hrósað mér fyrir það þegar ég tek fyrir nokkrar vörur og greini þær svo þið sjáið góðan mun. Það er þó til hellingur af fljótandi förðum svo það mun án efa koma framhald af þessari færslu innan skamms… ;)
Að lokum langar mig að minna á Facebook síðuna mína HÉR og póstfangið ernahrund(hjá)trendnet.is ef þið eruð með einhverjar spurningar. Ég reyni alltaf að svara öllum og eftir bestu getu!
Mig dreymir um að eiga einn af fallegu púðunum eftir hana Kristjönu. Mágkona mín á einn sem er sannkallað listaverk og ég tók eftir því að þeir eru fáanlegir í Kiosk þessa stundina og prýða einn af gluggunum þar.
Ég er farin að safna alls konar hlutum á óskalista hjá mér – 24 ára afmælisdagurinn nálgast óðfluga og þessir púðar eru ofarlega á listanum.
Ég á þó í miklum erfiðleikum með að velja hvaða púða ég ætti að fá mér – eða fá gefins – mér finnst fiðrildið ofboðslega flott en líka fuglarnir en mágkona mín á þannig svo ég ætti kannski að velja einhvern aðeins öðruvísi:)
Inná heimasíðu Kristjönu sem þið finnið HÉR eru svo ýmsar aðrar vörur í boði – og fleiri púðar líka. Þar eru t.d. teikningar og þessar hér heilla mig mest.
Mig dauðlangar í púða eða teikningu – get eiginlega ekki líst því nógu sterkt!
Ég bý yfir ýmsum leyndarmálum sem ég er reyndar mjög dugleg að segja ykkur frá. Eitt af þeim er að ég er algjör sökker fyrir kvikmyndaseríum – eins og Harry Potter, Star Wars, Lord of the Rings og ég get varla beðið efti næstu mynd af Hobbitanum. Þetta er eitthvað sem ég kenni föður mínum um en honum var mikið í mun að við systkinin kynnum góðar myndir/sögur að meta og það tókst svo sannarlega vel upp hjá honum.
Það sem vantar þó á þennan lista er James Bond. Ég hef séð allar myndirnar (nokkrum sinnum) – meirað segja upprunalegu Casino Royale og Never Say Never Again (sem er ekki viðurkennd JB mynd). Hver og einn leikari sem hefur leikið James Bond hefur gert karakterinn að sínum og hann hefur breyst mikið í gegnum árin. Það sem þessir leikarar hafa allir þó lagt áherslu á er að leggja áherslu á karlmannleg eðli karakterins (þó allir á ólíkann hátt). Mér finnst þó enginn leika hann jafn vel og Sean Connery þó svo Daniel Craig komist næst því – Pierce Brosnan fór með það þegar hann tók þátt í Mamma Mia. Ég sá bara fyrir mér James Bond að syngja ABBA – sem passaði ekki alveg…
En svo ég komi mér að efninu þá er þessi færsla ætluð til að kynna fyrir ykkur nýja James Bond ilminn – sem er eins og karakterinn mjög karlmannlegur!
Ilmurinn er Eau de Toilette sem og heitir Quantum og er þriðji ilmurinn sem er gefinn út undir nafni James Bond. Ilminum er ætlað að hressa líkama og sál og efla skilningarvitin og viðbragðsflýtina sem þarf til að geta leyst öll verkefni…. svona eins og Bond gerir;)
Ilmurinn er samansettur af einiberjum sem fer svo yfir í peruappelsínur sem gefa sítruskeim – dýpsti tónn þessa ilms er svo sandelviður sem einmitt einkennir marga herrailmi og gefur þeim þetta karlmannlega element. Það sem kom mér þó helst á óvart var einn tónn ilmsins sem ég áttaði mig ekki fyllilega á fyr en ég var búin að lesa mér betur til um ilminn og það er ilmur af leðri. Með leðrinu kemur tenging við dýru sportbílana sem James Bond ekur um á. Saman við þessa tóna blandast svo fjólublöð sem gefa ilminum og karlmanninum sem notar hann yfirvegun. Fjólublöðin finnst mér ná að tengja alla þessa ólíku tóna saman í mjög góðan herrailm.Hér sjáið þið flöskuna – en uppáhalds hjá mér við hana er tappinn sem er samt eiginlega ekki til staðar því þetta er snúningstappi. Ég nefninlega á það til að týna stundum töppum af ilmvatnsglösum – hvernig það veit ég ekki. Svo þetta er kostur finnst mér svona fyrir þá karlmenn sem eru utan við sig.
Ilmurinn er fáanlegur í 30ml og 50 ml umbúðum – einnig er til After Shave Lotion, Sturtugel og Deo stick.
Mig langaði að poppa aðeins uppá forsíðuborðann minn í tilefni opnunar á nýju útliti trendnet.is. Ég hafði því samband við hana Rakel Tómasar sem ég hef svo oft skrifað um – sjáið meira eftir hana HÉR. Mig langaði í teikningu sem væri dáldið táknræn fyrir síðuna mína – hér sjáið þið útkomuna!
Hvernig líst ykkur á – sjálf er ég sjúklega ánægð með útkomuna! Það er svo ljósmyndarinn yndislegi Aldís Pálsdóttir sem á heiðurinn af myndinni af mér – sem ég veit ekki hvort ég haldi inná borðanum. Mér finnst teikningin hennar Rakelar bara svo flott að kannski ég leyfi henni að eiga borðann ein – hvað segið þið?
Svo langar mig að þakka öllum fyrir frábært gærkvöld – ég skemmti mér konunlega þó svo ég hafi verið komin extra snemma heim og uppí rúm enda alltof löng vinnuvika að baki ;)
Finnst ykkur ekki kominn tími til að ég segi ykkur aðeins frá leyniverkefninu sem ég er búin að vera að vinna í….
Núna í haust ætla ég að gefa út nýtt veftímarit sem fjallar eingöngu um snyrtivörur, förðunarvörur, förðunartískuna, nýjungar í heimi snyrtivara, sögurnar og á bakvið þær og einnig verða viðtöl við fólkið sem þrífst í þessum heimi. Mér hefur fundist ótrúlega gaman að fjalla um allt þetta hér á síðunni minni – en mig langar að taka þetta skrefinu lengra. Ég vil meðal annars bjóða uppá alvöru umfjallanir um snyrtivörur þar sem áherslan er lögð á að hver og ein kona geti fundið sér snyrtivörur sem henti henni.
Þessa dagana sit ég og skrifa og skrifa og skrifa svo aðeins meira – svo pæli ég í uppsetningu, skipulegg myndatökur og tala við áhugaverðar konur. Það er vægast sagt nóg að gera og ég er í essinu mínu.
Um daginn var myndataka fyrir myndaþátt og forsíðu blaðsins – ég fékk ótrúlega hæfileikar skvísur með mér í lið og útkoman var virkilega skemmtileg. Hér sjáið þið nokkrar myndir sem sýna þó voðalega lítið – þið fáið að sjá meira seinna.
Ég ætla að sjálfsögðu að leyfa ykkur að fylgjast með framgangi mála, en ég er nú þegar búin að tease-a smá um nokkrar umfjallanir sem verða í fyrsta blaðinu. Svo ef þið eruð forvitnar þá verðið þið bara að fara að lesa aðeins aftur í tímann ;)
Díses hvað ég er spennt að segja ykkur meira frá – en þetta er nóg í bili.
Að lokum verð ég að hryggja ykkur yndislegu lesendur með því að tilkynna að ég verð ekki alveg með hugann við síðuna mína næstu dagana. Ég verð að leyfa síðunni að mæta smá afgangi á næstunni svo ég geti komið blaðinu mínu út;)