fbpx

Real Techniques burstarnir eru væntanlegir til Íslands

FörðunarburstarMakeup Artist

Ég get ekki líst því hversu erfitt það hefur verið fyrir mig að halda þessu leyndarmáli fyrir mig – mér líður eins og ég sé búin að þurfa að halda þessu fyrir mig í svona 10 ár – nú er ég að ýkja mjög gróflega;)

Real Techniques burstarnir eru á leiðinni til landsins og eru væntanlegir í sölu hér núna í haust/vetur. Þetta eru án efa einhverjir bestu förðunarburstar sem ég hef prófað. Þeir eru skyldueign fyrir allar konur – það besta við þá er að þið þurfið ekki að vera lærðir makeup artistar til að geta notað þá á réttan hátt. Burstarnir vinna nánast vinnuna fyrir ykkur og skila svo fallegri áferð og útkomu.

Ég er búin að vera að vinna mjög skemmtilegt verkefni í kringum launchið á burstunum – svo þess vegna er spenningurinn kannski svona mikill.. En heildsalan sem er að flytja þá inn fékk mig til liðs við sig í þetta verkefni. Það verður gott úrval af burstum fáanlegt hér en ég segi ykkur betur frá því þegar biðin eftir komu burstanna styttist.

Finnst ykkur þeir ekki fallegir!

EH

Þakklæti <3

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Soffía Arngrímsd.

    22. August 2013

    Hvar verða þeir í sölu og veistu hvað þeir munu kosta =)

    • Reykjavík Fashion Journal

      23. August 2013

      Því miður þá er ég ekki með það á hreinu eins og er – en ég segi ykkur betur frá öllu saman, úrvalinu og sölustöðunum þegar nær dregur :)

  2. Agata Kristín

    22. August 2013

    Jú ekkert smá! Hlakka til að bæta þeim bleiku í safnið mitt.

  3. Ólöf

    22. August 2013

    Yay! Frábært

  4. Ellen Agata

    22. August 2013

    Gleðifréttir!! Frábærir burstar og mjög fallegir.