fbpx

Teikning eftir Rakel Tómasar

Mig langaði að poppa aðeins uppá forsíðuborðann minn í tilefni opnunar á nýju útliti trendnet.is. Ég hafði því samband við hana Rakel Tómasar sem ég hef svo oft skrifað um – sjáið meira eftir hana HÉR. Mig langaði í teikningu sem væri dáldið táknræn fyrir síðuna mína – hér sjáið þið útkomuna!

Hvernig líst ykkur á – sjálf er ég sjúklega ánægð með útkomuna! Það er svo ljósmyndarinn yndislegi Aldís Pálsdóttir sem á heiðurinn af myndinni af mér – sem ég veit ekki hvort ég haldi inná borðanum. Mér finnst teikningin hennar Rakelar bara svo flott að kannski ég leyfi henni að eiga borðann ein – hvað segið þið?

Svo langar mig að þakka öllum fyrir frábært gærkvöld – ég skemmti mér konunlega þó svo ég hafi verið komin extra snemma heim og uppí rúm enda alltof löng vinnuvika að baki ;)

EH

Reykjavík Makeup Journal

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Sól Margrét

    21. September 2013

    mjög flott svona! æðisleg teikning

  2. Andrea

    21. September 2013

    Tók strax eftir þessu ….Finnst þetta ÆÐIIIII

  3. Edda Sigfúsdóttir

    22. September 2013

    Ekkert smá flott teikning hjá henni!! Mér finnst að þú eigir klárlega að halda myndinni inná líka, borgin þín og svo þú! ;)

  4. Unnur Lárusdóttir

    22. September 2013

    Rakel er yndisleg og algjör fagmanneskja fram í fingurgóma!