fbpx

Reykjavík Makeup Journal

Finnst ykkur ekki kominn tími til að ég segi ykkur aðeins frá leyniverkefninu sem ég er búin að vera að vinna í….

Núna í haust ætla ég að gefa út nýtt veftímarit sem fjallar eingöngu um snyrtivörur, förðunarvörur, förðunartískuna, nýjungar í heimi snyrtivara, sögurnar og á bakvið þær og einnig verða viðtöl við fólkið sem þrífst í þessum heimi. Mér hefur fundist ótrúlega gaman að fjalla um allt þetta hér á síðunni minni – en mig langar að taka þetta skrefinu lengra. Ég vil meðal annars bjóða uppá alvöru umfjallanir um snyrtivörur þar sem áherslan er lögð á að hver og ein kona geti fundið sér snyrtivörur sem henti henni.

Þessa dagana sit ég og skrifa og skrifa og skrifa svo aðeins meira – svo pæli ég í uppsetningu, skipulegg myndatökur og tala við áhugaverðar konur. Það er vægast sagt nóg að gera og ég er í essinu mínu.

Um daginn var myndataka fyrir myndaþátt og forsíðu blaðsins – ég fékk ótrúlega hæfileikar skvísur með mér í lið og útkoman var virkilega skemmtileg. Hér sjáið þið nokkrar myndir sem sýna þó voðalega lítið – þið fáið að sjá meira seinna.

SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC

Ég ætla að sjálfsögðu að leyfa ykkur að fylgjast með framgangi mála, en ég er nú þegar búin að tease-a smá um nokkrar umfjallanir sem verða í fyrsta blaðinu. Svo ef þið eruð forvitnar þá verðið þið bara að fara að lesa aðeins aftur í tímann ;)

Díses hvað ég er spennt að segja ykkur meira frá – en þetta er nóg í bili.

Að lokum verð ég að hryggja ykkur yndislegu lesendur með því að tilkynna að ég verð ekki alveg með hugann við síðuna mína næstu dagana. Ég verð að leyfa síðunni að mæta smá afgangi á næstunni svo ég geti komið blaðinu mínu út;)

EH

#smashboxiceland

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Helga

    20. September 2013

    En spennandi! Til hamingju – hlakka til að sjá!

  2. Gerður

    21. September 2013

    Spennandi, hlakka til að sjá !!

  3. Edda Sigfúsdóttir

    21. September 2013

    Þú ert náttúrlega duglegust!!

  4. Gudlaug H. Òskarsdòttir

    22. October 2013

    Fínt ad fà leidbeiningu med hùdina fyrir veturinn.Takk fyrir

    • Reykjavík Fashion Journal

      23. October 2013

      Já það er einmitt á hugmyndalistanum mínum :D – stefni reyndar að taka það fyrir í 3. blaðinu sem verður þá tileinkað húðumhirðu ;)