fbpx

Varalitadagbók #21

Ég Mæli MeðFallegtmakeupMakeup ArtistNetverslanirNýtt í snyrtibuddunni minniSnyrtibuddan mínSS14

Ég er ótrúlega ánægð með Matte Me varalitaglossin sem ég keypti mér hjá henni Heiðdísi Austfjörð á haustfjord.is. Varalitaglossin heita Matte Me og verða alveg mött og sjúklega litsterk og áferðin finnst mér þétt.

Ég er með þennan lit á mér í fallega sumarveðrinu en ég ætla að njóta þess með strákunum mínum á Miðborgarvökunni í kvöld – vona að það sama sé uppá snærunum hjá ykkur ;)

matteme2

Rauðbleikur kinnalitur í stíl við varirnar ;)matteme

Matte Me frá Sleek í litnum Party Pink – fæst HÉR – kostar aðeins 1490kr og hann var kominn í póstkassann hjá mér eftir 2 daga ;)

matteme3Hlakka til að testa hvernig liturinn endist það sem eftir er dagsins. En ég verð að segja að ég finn ekki fyrir litnum hann er eins og örþunn filma yfir vörunum mínum – hirkalega þæginlegur og gerir varirnar mjúkar og fínar. Liturinn skemmir svo ekki fyrir ekta sumarlitur. Í leiðinni fékk ég mér líka fjólubláa litinn Fandango Purple sem ég sýni ykkur innan skamms:)

EH

 

Varaskrúbbur

Ég Mæli MeðMakeup Tips

Ég keypti mér skrúbb fyrir varirnar um daginn. Ég er ein af þessum sem get ekki látið varirnar á mér í friði ég naga þær í tíma og ótíma – þetta er alveg ferlegt hjá mér. Fyrir vikið eru varirnar mínar ekkert alltaf í góðu standi og mjög oft sprungnar. Eina leiðin sem ég hef fundið mér til að koma í veg fyrir þetta nag mitt er að skrúbba varirnar mínar reglulega með blautum þvottapoka en mjög lengi hafði mig langað að prófa einhvers konar varaskrúbb. Þegar ég rakst svo á þennan hér á fer minni um vefverslanir landsins varð ég hreinlega að prófa hann!

nola11

Varaskrúbburinn er frá Sara Happ og fæst í vefversluninni Nola.is HÉR er linkur á skrúbbinn sem er til með fleiri ilmum:)

Ég valdi mér piparmyntuilminn en hann er rosalega frískandi. Skrúbburinn er dáldið grófur og hann bráðnar á vörunum og þær verða ótrúlega mjúkar og fallegar. Ég smellti einum á Aðalstein eftir skrúbbunina sem hafði orð á því að fyrra bragði hvað varirnar mínar væru mjúkar og fínar – held að varan geti ekki fengið skemmtilegra eða krúttlegra hrós en það!

varir2

Hér sjáið þið skrúbbinn á vörunum og varirnar eftir skrúbbinn :)

Þvottapokinn virkar nú alltaf vel en þessi gerir varirnar miklu mýkri;) Ég held að svona skrúbbur sé möst að eiga fyrir sumarið og gott að nota reglulega 1-2 í viku eftir ástandi varanna. Þennan er líka gott að nota áður en þið setjið á ykkur varalit, byrjið á því að skrúbba varirnar, setjið svo kannski varasalva og byrjið svo að farða ykkur. Þegar það er svo komið að vörunum verða þær mjúkar og fínar og miklu auðveldara að bera varalitinn á:)

nola10

Nola.is er ein af þessum nýju vefverslunum sem hefur opnað á síðustu vikum. Ótrúlega flottar vörur og allt vörur sem hafa ekki áður verið fáanlegar á Íslandi. Í dag er opið hús hjá henni Karin sem er með verslunina og þar gefst okkur tækifæri til að kíkja á vörurnar hennar. Ég er langspenntust að kíkja á Embryolisse vörurnar sem ég hef bara heyrt góða hluti um en aldrei prófað. Karin er sjálf förðunarfræðingur með gríðarlega reynslu úr bransanum og ég veit því að allar vörurnar sem eru fáanlegar hjá henni eru þar vegna gæða þeirra :)

Hún deilir skrifstofu með annarri vefverslun Snúran.is og iðnhönnuðinu Kristbjörgu Maríu svo vörur frá þeim verða einnig til sýnis og auðvitað verður hægt að versla – ég mæti alla vega með veskið. Stelpurnar eru staðsettar í gamla strætóhúsinu við Lækjartorg – uppá 4. hæð en inngangurinn er við hliðiná Lækjartorgi. Það er opið frá 17-20. HÉR getið séð meira um viðburðinn.

Eins og Hildur segir frá HÉR þá er Miðborgarvaka í bænum í kvöld og allar verslanir opnar til klukkan 22. Mæli því með því að þið gerið ykkur ferð niður í bæ, njótið veðursins, fáið ykkur eitthvað gott að borða og kíkið í búðir!

EH

Dýrindis rósir

FallegtFyrir HeimiliðLífið MittSS14

Það er fátt sem ég elska jafn mikið og að hafa lifandi blóm heima hjá mér. Þegar ég vinn í víkingalottói ætla ég að ráða manneskju sem sér um það að það séu alltaf lifandi blóm heima hjá mér – samt bara afskorin þar sem það hvílir einhvers konar bölvun á mér sem kemur í veg fyrir að ég geti haldið lífi í pottaplöntu…

Ég var í ótrúlega skemmtilegri myndatöku í gær með frábæru fólki ég er aðeins of spennt að sjá útkomuna en það verður því miður ekki næstum því strax. En heim úr tökunum – sem tóku vandræðalega stuttan tíma miðað við magn af myndum sem við vorum komin með – fengu fallegar rósir úr blómaheildsölunni á Grensásvegi að fylgja mér heim. Þessar og svo margar fleiri léku smá hlutverk í myndatökunni.

Ég var svo heilluð að fallega litnum á þeim að ég tók myndavélina upp og smellti dáldið mörgum myndum af þeim :)

rósir7 rósir6 rósir4 rósir rósir3 rósir5

Myndirnar hefðu eflaust verið enn fallegri í tveimur af mínum draumablómavösum sem hafa of lengi verið á óskalistanum…

f6db594526e21287749f4952b93fbb93

Hár Alvar Aalto vasi – helst í nýja bláa litnum.

Mellem Omaggio - Forside1-p

Kahler vasi – þessi fæst í Hrím hér á Íslandi – mér finnst hann dásamlegur. Held líka að hann sé fullkominn undir fallegu Lúpínurnar þegar þær fara að spretta upp útum allt.

Amma mín er mikil blómakona og hún lumar á ýmsum ráðum. Hún mælit t.d. með því að ef það er hægt að setja þá rósir í einhvers konar kælingu á næturnar. Hún sjálf var með garstofu og er nú með yfirbyggðar svalir og þangað fara hennar rósir á næturnar. Með þessum aðgerðum hefur konan látið afskornar rósir lifa í ótrúlega langan tíma um daginn var hún búin að vera með rósir sem ég gaf henni í næstum tvær vikur. Hún er blómakvíslarinn mikli í mínum augum :)

EH

Nýjir eigendur herrailmanna frá YSL

FallegtIlmirYSL

Þá er komið að því að tilkynna hverja ég dró út úr þeim sem settu athugasemd við færsluna mína um herrailmina frá YSL. En glösin eru sannkölluð listaverk en þau hannaði listamaðurinn Gardar Eide Einarsson en HÉR getið þið séð færsluna um þá.

yslherrar2-620x413

Dagilminn fær….

Screen Shot 2014-05-21 at 7.38.37 PM Screen Shot 2014-05-21 at 7.39.27 PM

og kvöldilminn fær….

Screen Shot 2014-05-21 at 7.38.32 PM Screen Shot 2014-05-21 at 7.39.39 PM

Innilega til hamingju Sigrún Svava og Inga Kristín ég vona að ykkar strákar verði ánægðir með ilmina. Hafið endilega samband við mig á ernahrund(hjá)trendnet.is með upplýsingum um hvert ég get sent þá :)

EH

 

Kíkt í snyrtibudduna: Alexandra Helga

FylgihlutirÍSLENSK HÖNNUNMakeup ArtistMakeup Tips

Ég er svo forvitin að eðlisfari og mér finnst fátt skemmtilegra en að fá að hnýsast í snyrtibuddur annarra og virða fyrir mér hvað þær innihalda. Mögulega rekst ég á vörur sem ég hef ekki heyrt um áður og svo finnst mér alltaf gaman að heyra hvernig fólk notar förðunar- og snyrtivörur.

Ég fékk að leggja nokkrar spurningar fyrir hana Alexöndru Helgu sem er búsett í Englandi þar sem hún er að læra skartgripahönnun í Jewellery Manufacture í Holts Academy. Alexandra er ein af fallegust konum landsins og því var ekki leiðinlegt að fá að heyra dáldið um hennar fegurðarvenjur. Hún er líka ótrúlega hæfileikarík en hún hefur verið að hanna falleg armbönd samhliða náminu sínu – meira um þau hér aðeins neðar…

10363776_10151957827045834_679738095_n

Geturðu lýst þinni daglegu förðunarrútínu?

Dagsdaglega fíla ég vanalega ekki að vera mikið máluð, sérstaklega á húðinni. Ég nota hyljara frá CEE ef ég er með bólur eða á rauð svæði. Touche Eclat nr 2 frá YSL undir augun til að birta örlítið yfir augnsvæðinu, svo set ég á mig Hypnose maskarann frá Lancome og stundum svartann blýant sem ég “smudgea” niður í augnháralínuna. Svo set ég oftast smáveigis bleikan eða peach kinnalit sem frískar mann verulega við í kinnarnar. Uppáhalds kinnalitirnir mínir eru Rouge Powder 03 frá Dr.Hauschka og Coral Lace frá Make Up store.

Prófarðu reglulega nýjar snyrtivörur?

Já mér þykir það mjög gaman og það er oftast mjög auðvelt að selja mér nýtt og spennandi makeup.

Hver er uppáhalds maskarinn þinn og af hverju?

Hypnose frá Lancome er minn allra uppáhalds maskari og ég hef notað hann í 10 ár. Ég hef nokkrum sinnum verið plötuð í að kaupa og prófa aðra gerð í gegnum tíðina en þeir hafa í öll skipti endað í ruslinu eftir 2-3 skipti þar sem Hypnose er langt um betri. Hann hentar mínum augnhárum mjög vel þar sem þau eru löng og hann klessir lítið. Mér finnst best að nota mjóan plokkara og greiða á milli augnháranna þegar ég set á mig maskara svo þau verði jafnari og minna klesst.

096018043221_BROWN_HYPNOSE

Hvaða húðvörur notarðu?

Ég hef verið að nota aloe vera vörur frá Sonya sem mér þykir mjög góðar. Þegar ég er í sól passa ég vel uppá að vera með góða sólarvörn þar sem ég er með viðkvæma húð og nota aldrei vörn undir 30 SPF. Í augnablikinu er ég að nota vörur frá Ultrasun Professional Protection sem eru bæði með vörn fyrir UBV og UVA geislum. Andlitsvörnin þeirra fyrir viðkvæma húð er einstaklega góð og heldur manni bólu- og útbrotalausum í fríinu.

Áttu eitthvað gott förðunartips sem þig langar að deila með okkur?

Besta förðunartips sem ég hef nokkutíma fengið var þegar ég var 18 ára og Elín Reynis sminka bað mig að hætta að lita á mér augabrúnirnar. Ég er mjög þakklát fyrir að hún hafi náð til mín þar sem það var normið að allar stelpurnar lituðu brúnirnar mjög dökkt hvort sem þær voru dökkhærðar eða ljóshærðar. Svo mitt tips fyrir ljóshærðar stelpur er að hætta lita þær og fylla frekar upp í eyður og skerpa þær með mildum blýant og greiðu. Góðar augabrúnir skipta svo ótrúlega miklu. Einnig finnst mér mikilvægast að vera með réttan lit af meiki sem passar þínum húðtón. Í þau skipti sem ég nota blautt meik nota ég Photofinish Primer frá Smashbox undir meik á eftir góðu rakakremi sem gefur fallega áferð.

Hvernig popparðu uppá förðunina þína þegar þú ert að fara fínt út?

Ég mála mig mun meira þegar ég fer eitthvað fínt og þykir helst gaman að leika mér með augnsvæðið. Ég er ekki mikil varalitamanneskja þó ég eigi það til að setja upp dökkan varalit. Ég hugsa að í flestum tilvikum endi ég með dökkt smokey og ljósan tón á vörunum. Ég á mér engann sérstakan uppáhalds augnskugga en ég kaupi þá flesta í MAC. Þá set ég líka oft blautan liner og nota svarta pot linerinn frá Bobbi Brown. Ég notast vanalega ekki við blautt meik nema spari og blanda þá oftast saman lit frá Makeup Forever HD og öðrum frá Chanel. Annar er dekkri en hinn og notast ég við þá allt árið en blanda þeim saman til þess að fá réttan lit á húðina eftir árstíð.

10405778_10151957827390834_1214608920_n

Hvar verslarðu helst snyrtivörur?

Þegar ég er á Íslandi þá fylli ég reglulega á hyljara frá CEE og sólarpúður og svarta línu frá Sothys. Annars fer það bara eftir hvaða vöru mig vantar og hvar ég er stödd hverju sinni. Maskara kaupi ég nánast alltaf 3 saman í pakka á flugvöllum þegar ég ferðast. Finnst mjög gott að eiga alltaf auka eintak heima ef ég þarf nýjann.

Hvað þarf til þess að þú prófar nýjar snyrtivörur?

Ég kynntist mikið af nýjum vörum þegar ég lærði makeup Í London 2012 hjá AOFM og hef í raun verið opnari fyrir því að prófa hin ýmsu merki og vörur síðan. Ef ég heyri af góðum vörum er ég dugleg að prófa þær sjálf og enda svo með að nota það sem mér þykir best hverju sinni.

Er eitthvað snyrtivörumerki sem er í meira uppáhaldi heldur en önnur?

Ég á mér í raun ekki neitt uppáhalds merki. Er frekar með ákveðna vörur í hverju merki sem ég held uppá sem ég nota í bland við annað. En þegar kemur að varalitum heftur MAC vinninginn.

Hvað finnst þér nauðsynlegt að eiga í snyrtibuddunni fyrir sumarið?

Fallegan ferskjulitaðan kinnalit, Porcelaine 204 himinbláa naglalakkið frá Dior og góða sólarvörn.

DiorPorcelaineSwatchesReview

Notarðu förðunarbursta – ef svo er áttu einhverja uppáhalds?

Já, flestir þeirra eru frá MAC en ég á líka nokkra sem mér þykja góðir frá Makeup store, Real Techniques, Smashbox, Dior og fleiri merkjum. Ég á mér uppáhaldsbursta sem henta hverju verkefni fyrir sig. Angled brush frá Smashbox finnst mér algjör snilld þegar kemur að blautum eyliner.

Mér finnst svo skemmtilegt að lesa í gegnum þetta og fá góð tips frá öðru fólki. Mér finnst t.d. ráðið sem Elín Reynis gaf Alexöndru Helgu sem hún deilir hér með okkur algjör snilld og ég er þeim svo hjartanlega sammála. Ég hvet ykkur til að tileinka ykkur það sérstaklega þar sem það eru til svo margar góðar vörur núna til að móta augabrúnir. Svo þarf ég núna að fara að endurnýja kynni mín við Sothys hreinsivörurnar. Mér fannst mjög gaman að reka augun í það vörumerki þar sem afi minn heitinn átti heildsöluna sem var með merkið fyrir mörgum árum síðan og ég fæ svona nostalgíu tilfinningu þegar ég sé þær og sérstaklega þegar ég finn ilminn af þeim!

Ég verð nú líka að segja að ég elska hvað hún nefnir vörur frá ólíkum merkjum það er ekki bara eitt merki sem er í aðalhlutverki:)

10388331_10151957827685834_1587576592_n

Eins og ég skrifa hér fyrir ofan þá er Alexandra Helga að læra skartgripahönnun og armböndin sem hún hefur verið að gera meðfram náminu hafa vakið verðskuldaða athygli meðal íslenskra kvenna og auðvitað okkar hér á Trendnet.

10409802_10151957827890834_2121690427_n

Um leið og ég sá þessa mynd af armböndunum hennar Alexöndru Helgu þá vissi ég að ég yrði að eignast eitt svona svo að sjálfsögðu pantaði ég það og það kom til mín í mars. Þetta er einn fallegasti skartgripur sem ég hef átt og passar við allt. Mér finnst þau passa sérstaklega vel við úr eins og Elísabet sýndi í færslu sem hún skrifaði um armböndin sín frá Alexöndru Helgu HÉR.

AHarmband

Hér fyrir ofan sjáið þið armbandið mitt sem kom til mín í svona krúttlegum poka sem ég geymi það í. Mig langar endilega í fleiri svona, finnst það koma mjög vel út að vera með fleiri en eitt.

Fyrir áhugasamar þá fást armböndin í versluninni Level HÉR og í gegnum Alexöndru Helgu sjálfa HÉR.

Takk Alexandra Helga fyrir að leyfa mér og lesendum að kíkja í snyrtibudduna þína:*** Að lokum hvet ég lesendur til að fylgjast með blogginu hennar Alexöndru Helgu sem þið finnið HÉR – fallegar myndir og girnilegar uppskriftir!

EH

Hvað er til?

HúðMakeup TipsNýjungar í SnyrtivöruheiminumSnyrtibuddan mínSS14

Nú þegar sólin er farin að láta sjá sig er um að gera að fara að taka fram sólarvörnina. Vörnin ver okkur fyrir útfjólubláum geislum sólar sem geta skaðað húðina okkar og flýtt fyrir öldrun hennar. Yfir sumartímann tökum við smám saman lit og þó svo við séum með vörn í andlitinu þá fær húðin samt sem áður fallegan lit.

Mig langaði að segja ykkur frá nokkrum lituðum dagkremum sem eiga það flest sameinlegt að vera ekki með SPF undir 20 (það er eitt sem er með SPF 6 en það varð samt að fá að vera með). Annað sem þau eiga sameiginlegt er að þau gefa fallegan ljóma og gefa húðinni aðeins dekkri lit og ýta undir litinn sem hún er kannski þegar komin með. Mörg þessara krema eru BB krem en kallast þá frekar sólar BB krem.

Hér sjáið þið sólar kremin sem gefa húðinni vörn, ljóma og lit – hvað er til og hver er munurinn…

sólarvarnakrem sólarvarnakrem2Öll kremin eru ný á markaðnum fyrir utan tvö þeirra, Dior kremið kom síðasta sumar og Sensai gelið er auðvitað klassísk vara sem er búin að vera til ótrúlega lengi. Verðið er auðvitað mjög misjafnt eftir merkjunum eins og alltaf að sjálfsögðu þá mæli ég með eins og alltaf að þið kíkið á testerana á þeim kremum sem ykkur líst best á og prófið á handabakinu og metið hvaða áferð hentar ykkur best.

Ég verð að taka það fram líka að kremin frá Lancome, Guerlain og Helenu ilma eins og sólavarnarkrem – ég elska ilminn af sólarvörnum mér finnst hann alltaf minna mig á sumarið :)

Eitt af þessum er ómissandi fyrir snyrtibudduna í sumar – hvað líst ykkur best á?

EH

 

Elle Style Awards: Sine Ginsborg

elledkFashionmakeup

Dönsku Elle Style Awards fóru fram í Kaupmannahöfn í gær og þar mætti fremsta fólkið í tískuheiminum í Danmörku til að sýna sig og hitta aðra. Þetta eru skemmtileg verðlaun og gaman að danskri tísku sé gert svona hátt undir höfði.

Ein verðlaunin eru veitt þeim makeup artista sem þótti skara fram úr á síðasta ári og auðvitað eru það verðlaunin sem ég hef mestan áhuga á. Sú sem hreppti þau í ár heitir Sine Ginsborg og er mjög þekkt í förðunarheiminum í Danmörku. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún hreppir verðlaunin heldur í það þriðja og það þriðja árið í röð!

Ég fékk þann heiður að fylgjast með þessari hæfileikaríku konu á tískuvikunni í Kaupmannahöfn núna fyrr á árinu. En hún var í teymi L’Oreal fyrir tískuvikuna og tók þátt að farða fyrir Wackerhaus og Stine Goya.

sine sine2

Sine er ótrúlega hæfileikarík í sínu fagi en hér sjáið þið nokkrar af hennar förðunum…

c6bcc2de0e172d740d1c13e77e95c909 94530b463a8b95c8462ae43dd5762639 ba537f97de76c8b5b0c71a12a1ee4f27 597e02f0e24ec0f49af7196bbd3e513a 5ba466ce9d30d80cf4e86d5d388f1ce2

Ótrúlega fallegar myndir og það sem þær eiga sameiginlegt er að húðin er alltaf lýtalaus! Ég elska þegar lögð er áhersla á að húðin sé alveg pörfekt hvernig sem heildarlúkkið er. Það er eitthvað sem ég reyni alla vega að tileinka mér.

Sine vinnur mikið fyrir dönsku útgáfuna af Elle og ég hvet ykkur til að líta eftir nafninu hennar næst þegar þið flettið í gegnum tímaritið. Einnig hefur hún farðað fyrir forsíðumyndatökur fyrir síðustu tvær forsíður Costume. En auk þess að vinna sem förðunarfræðingur þá er hún með sinn eigin förðunarskóla og þið finnið hana undir @sineginsborgmakeupschool á Instagram þar sem þið getið fylgst með vinnunni hennar og auðvitað skólanum.

Svo ég haldi nú áfram líka að segja ykkur frá verkum Sine þá sér hún alltaf um að farða dönsku söngkonuna Medinu. Þær gerðu fyrir stuttu saman ótrúlega flottan myndaþátt fyrir danska Elle þar sem söngkona var í viðtali.

Sine Ginsburg er nafn sem allt förðunaráhugafólk ætti að þekkja og hafa augu með ;)

EH

 

Neglur dagsins: Ice Cream Kisses

Ég Mæli MeðFallegtneglurNýtt í snyrtibuddunni minni

Neglur dagsins eru ótrúlega sumarlegar og krúttlegar – ég er ástfanin af naglalökkum í pastellitum – hafið þið tekið eftir því!

bleikarneglur

Ice Cream Kisses frá nola.is – fæst HÉR

Mér finnst þetta æðislegur litur og áferðin er rosalega þétt. Lakkið er fljótt að þorna og það er þæginlegt að bera það á neglurnar. Lakkið er frá merkinu Bubblelina sem er einmitt það sama og er með lökkin sem breyta um lit eftir því hvort manni sé heitt eða kalt!

Fullkomið fyrir veðrið á höfuðborgarsvæðinu í dag:)

EH

 

Ný hreinsilína frá Helenu

Ég Mæli MeðHelena RubinsteinHúðNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minniSnyrtivörur

Eitt fremsta afrek Helenu Rubinstein fyrir snyrtivöuruheiminn var án efa þegar hún fann upp vatnsheldu maskara formúluna sem öll snyrtivörumerki tóku upp í kjölfarið. Síðan þá hefur merkið verið leiðandi í því að þróa snyrtivörunýjungar sérstaklega maskara. Í fyrra skrifaði ég um þá nýjasta maskara merkisins en með honum var HR búið að þróa nýja tækni til að láta formúlu maskarans þorna síður upp. Í dag fékk ég svo sérstaklega fallegan póst frá dyggum lesanda sem fyrir utan það að leggja til efni í færslu (sem er einmitt í vinnslu) vildi gefa mér ráð. Ég hef alltaf gaman af því að heyra góðar reynslusögur frá lesendum. En þessi er með rosalega bein augnhár sem haldast illa uppi. Því notar hún helst vatnshelda maskara (en vatnsheld maskaraformúla er stífari, hrynur síður og lekur ekki til) þar sem þeir halda hennar augnhárum vel uppi. Hún þarf hins vegar að nota maskara sem þorna hratt og eitt af merkjunum sem hún nefndi sem væri með formúlu sem þornaði hratt er einmitt Helena Rubinstein:)

En HR býður uppá fleiri frábærar vörur og nýlega komu nokkrar nýjar húðvörur í sölu í verslunum þar á meðal ný hreinsivörulína sem inniheldur m.a. svartan skrúbb! Línan heitir Pure Ritual – frábært nafn enda er húðhreinsun tvisvar á dag ómissandi partur af daglegri rútínu.

Skrúbburinn vakti samstundis forvitni mína en ég fékk að prófa hann ásamt hreinsimjólkinni. Auk þessara vara komu hreinsifroða og andlitsvatn. Þetta er einföld húðvörulína sem hentar öllum húðgerðum. Hreinsimjólkina myndi ég ráðleggja fyrir þurra húð en hreinsifroðan hentar blandaðri/olíumikilli húð betur. Froðan þurrkar aðeins upp húðina sem hentar olíu húðinni ótrúlega vel en að sjálfsögðu ekki þessari þurru.

hreinsivörurhr

Hreinsimjólkin:

Hún er hvít, fljótandi og rosalega mjúk, það er lítill sem enginn ilmur af henni – hún ilmar eins og hreinleiki finnst mér:) Mjólkin kemur í pumpu sem mér finnst mjög gott þá getur hún bara staðið við vaskinn eða einhvers staðar inná baði  – þið pumpað hæfilegu magni í lófann og hreinsað húðina. Hreinsimjólkina má nota á augu og hún hreinsar bara nokkuð vel maskara og mér svíður ekki í augun undan henni. Með augnförðun þá er hæfilegt magn af hreinsimjólk að pumpa tvisvar í lófann. Hreinsimjólkin eru olíulaus.

Svarti skrúbburinn:

Er fínn kornaskrúbbur sem inniheldur gylltar flögur. Áferðin frá honum er olíukennd en fyrst um sinn er það eins og gel. Eftir því sem þið nuddið honum meira saman við húðina bráðnar skrúbburinn og hann verður að olíu. Skrúbburinn lagar og slípar yfirborð húðarinnar sem fær í kjölfarið meiri ljóma. Notið skrúbbinn á þurra húðina og nuddið með hringlaga hreyfingum þar til hann er orðinn olíukenndur – forðist augnsvæðið þegar þið notið skrúbbinn. Hreinsð hann þá af með vatni. Skrúbburinn er ótrúlega flottur og alveg kolsvartur. Þetta er ein af þessum sérstöku snyrtivörum sem vekja forvitni mína sérstaklega vegna litar formúlunnar. Samkvæmt mínum upplýsingum er skrúbburinn fyrir allar húðtýpur en mögulega þykir þeim sem eru með olíumikla húð óþæginlegt að nota hann og ég hvet því þær ykkar til að prófa skrúbbinn á handabaki í versluninni. Vörurnar fást t.d. í Hagkaup. Formúlan inniheldur sand sem er það sem slípar húðina vel og ég held að hann sé nógu fínn að nota á húð sem er t.d. með graftarbólur en það má aldrei nota of grófa skrúbba á þannig húð þar sem þar er hætta á að dreifa óhreinindunum um húðina.

Hvað er svona sérstakt við Pure Ritual?

Það sem sameinar línuna eru nokkur efni sem örva endurnýjun húðarinnar og hjálpa henni að hreinsa sig vel og berjast gegn sinduefnum. Glycolic Acid sem örvar húðflögnun. Black Rice þykkni sem er hreinsandi og vinnur á móti sinduefnum. White Rice þykkni sem örvar endurnýjun húðarinnar. Yeast þykkni sem örvar innri hreinsun.

Mér finnst mjög mikilvægt að vera með góðar hreinsivörur sem henta húð hverrar konu. Hreinsimjólk hentar minni húð alltaf best þó svo ég prófi reglulega aðrar týpur af hreinsum vegna starfsins en ég sný mér alltaf aftur að hreinsimjólkinni. Hreinsimjólk og andlitsvatn eru ómissandi tvíeyki sem eiga heima inná öllum baðherbergjum. Þó svo þið notið ekki förðunarvörur þá eru önnur óhreinindi í kringum okkur eins og t.d. mengun sem fer inní húðina og við þurfum að hreinsa þau burt. Vatn er ekki að gera það sama og andlitsvatn og því er það ekki nóg. Í stuttu máli þá opna húðhreinsar húðina og hreinsa upp óhreinindi eins og förðunarvörur eða önnur óhreinindi úr umhverfinu. Andlitsvatnið hreinsar þau óhreinindi sem geta verið eftir og lokar svitaholunum svo húðin geti farið að starfa eðlilega á ný. Auðvitað eiga svo allir að hreinsa húðina – þetta gildir ekki bara um konur ;)

Ég veit ég hef oft fjallað um þetta en þessi orð eru aldrei of oft kveðin!

EH

Annað dress: támjóir pinnahælar!

Annað DressLífið MittNýtt í FataskápnumSS14Trend

Ég þurfti að skella í dáldið fyndna uppstillta mynd um helgina fyrir viðtal sem mun birtast við mig í norsku lífstíls tímariti um Ísland og mína uppáhalds staði þar. Viðtalið fjallar auðvitað aðallega um Reykjavík og uppáhalds staðina mína þar, kaffihús og verslanir aðallega.

Þar sem það var kannski ekki alveg budget til að ferðast á milli norðurlandanna (en fleiri bloggarar frá löndunum í kring eru líka með) og taka myndir þá var ég beðin um að gera það sjálf. Eftir þrjár myndatökur voru myndirnar loksins sumarlegar og pössuðu með hinum. En það var dáldið erfitt að reyna að útskýra að veðrið á Íslandi er mjög ófyrirsjáanlegt og á þessu tímabili hentaði það sjaldan fyrir myndatökur utandyra.

Ein af myndunum átti að vera af mér niðrí bæ með innkaupapoka – mjög uppstillt mynd vægast sagt en hún nýtist mér líka vel í dag sem dressmynd.

annaðdressskór2

Kápa: VILA
Skyrta: Lindex
Buxur: Zara
Skór: Neola frá Bianco
Sólgleraugu: Dolce & Gabbana
Staður: Skólavörðustígurinn

annaðdressskór

Í tilefni sólarinnar tók ég fram nýjasta skóparið frá Bianco. Hér eru á ferðinni támjó leðurstígvél með pinnahæl. Skór sem ég hélt ég myndi aldrei falla fyrir en þegar ég sá mynd af þeim á facebook síðu verslunarinnar datt kjálkinn í gólfið af hrifningu! Á skónnum arkaði ég niður Skólavörðustíginn og upp Laugaveginn og fann ekki fyrir neinu. Ég var reyndar með innlegg í stígvélunum sem hjálpuðu líklegast til;)

Hrikalega þæginlegir skór sem smellpassa inní skótrend haustsins. Þessir eru auðvitað mjög flottir við kvöldkjóla og sokkabuxur en ég sá strax fyrir mér að þeir yrðu flottir við uppbrettar bláar gallabuxur.

 

annaðdressskór3

 

Fékk svo svar frá tímaritinu í morgun um að þessar myndir (og fleiri sem við tókum í gær) væru fullkomnar fyrir viðtalið – hrikalega var ég fegin!!

Hlakka til að sýna ykkur útkomuna þegar blaðið kemur út ;)

EH