fbpx

Annað dress: támjóir pinnahælar!

Annað DressLífið MittNýtt í FataskápnumSS14Trend

Ég þurfti að skella í dáldið fyndna uppstillta mynd um helgina fyrir viðtal sem mun birtast við mig í norsku lífstíls tímariti um Ísland og mína uppáhalds staði þar. Viðtalið fjallar auðvitað aðallega um Reykjavík og uppáhalds staðina mína þar, kaffihús og verslanir aðallega.

Þar sem það var kannski ekki alveg budget til að ferðast á milli norðurlandanna (en fleiri bloggarar frá löndunum í kring eru líka með) og taka myndir þá var ég beðin um að gera það sjálf. Eftir þrjár myndatökur voru myndirnar loksins sumarlegar og pössuðu með hinum. En það var dáldið erfitt að reyna að útskýra að veðrið á Íslandi er mjög ófyrirsjáanlegt og á þessu tímabili hentaði það sjaldan fyrir myndatökur utandyra.

Ein af myndunum átti að vera af mér niðrí bæ með innkaupapoka – mjög uppstillt mynd vægast sagt en hún nýtist mér líka vel í dag sem dressmynd.

annaðdressskór2

Kápa: VILA
Skyrta: Lindex
Buxur: Zara
Skór: Neola frá Bianco
Sólgleraugu: Dolce & Gabbana
Staður: Skólavörðustígurinn

annaðdressskór

Í tilefni sólarinnar tók ég fram nýjasta skóparið frá Bianco. Hér eru á ferðinni támjó leðurstígvél með pinnahæl. Skór sem ég hélt ég myndi aldrei falla fyrir en þegar ég sá mynd af þeim á facebook síðu verslunarinnar datt kjálkinn í gólfið af hrifningu! Á skónnum arkaði ég niður Skólavörðustíginn og upp Laugaveginn og fann ekki fyrir neinu. Ég var reyndar með innlegg í stígvélunum sem hjálpuðu líklegast til;)

Hrikalega þæginlegir skór sem smellpassa inní skótrend haustsins. Þessir eru auðvitað mjög flottir við kvöldkjóla og sokkabuxur en ég sá strax fyrir mér að þeir yrðu flottir við uppbrettar bláar gallabuxur.

 

annaðdressskór3

 

Fékk svo svar frá tímaritinu í morgun um að þessar myndir (og fleiri sem við tókum í gær) væru fullkomnar fyrir viðtalið – hrikalega var ég fegin!!

Hlakka til að sýna ykkur útkomuna þegar blaðið kemur út ;)

EH

Nýjar hirslur á snyrtiborðið

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Eva

    19. May 2014

    hæ, geggjaðir skór!!! :) en hva, ertu í glimmer sokkum líka??? er að leita að þannig, snarspennt fyrir þeim, en finn hvergi. geturu hjálpað mér? ;0)

    • úff nei… þetta eru bara því miður illa farnar sokkabuxur haha :) En glimmersokka færðu í Selected :D:D

    • sunna s

      20. May 2014

      Tiger!

  2. Margrét

    19. May 2014

    Flottar myndir og geðveikar buxurnar!