fbpx

Varalitadagbók #21

Ég Mæli MeðFallegtmakeupMakeup ArtistNetverslanirNýtt í snyrtibuddunni minniSnyrtibuddan mínSS14

Ég er ótrúlega ánægð með Matte Me varalitaglossin sem ég keypti mér hjá henni Heiðdísi Austfjörð á haustfjord.is. Varalitaglossin heita Matte Me og verða alveg mött og sjúklega litsterk og áferðin finnst mér þétt.

Ég er með þennan lit á mér í fallega sumarveðrinu en ég ætla að njóta þess með strákunum mínum á Miðborgarvökunni í kvöld – vona að það sama sé uppá snærunum hjá ykkur ;)

matteme2

Rauðbleikur kinnalitur í stíl við varirnar ;)matteme

Matte Me frá Sleek í litnum Party Pink – fæst HÉR – kostar aðeins 1490kr og hann var kominn í póstkassann hjá mér eftir 2 daga ;)

matteme3Hlakka til að testa hvernig liturinn endist það sem eftir er dagsins. En ég verð að segja að ég finn ekki fyrir litnum hann er eins og örþunn filma yfir vörunum mínum – hirkalega þæginlegur og gerir varirnar mjúkar og fínar. Liturinn skemmir svo ekki fyrir ekta sumarlitur. Í leiðinni fékk ég mér líka fjólubláa litinn Fandango Purple sem ég sýni ykkur innan skamms:)

EH

 

Varaskrúbbur

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Rakel

    22. May 2014

    Vá æðislegur þessi, skellti mér á einn og hlakka til að prófa :)