í desember mun ég og Helga Rakel Þorgilsdóttir halda tvö skemmtileg hárgreiðslunámskeið. Annað námskeiðið er fyrir pabba og afa og hitt fyrir mömmur og ömmur sem vilja læra að greiða, binda og flétta hárið á stelpunum sínum.
Æskilegur aldur stelpna er 4 – 10 ára.
Kennslan er byggð á greiðslum úr hárgreiðslubókinni minni LOKKAR.
Það sem þátttakendur munu læra er:
Fræðsla og hárumhirða
Greiða hár
Skipta hári niður
Teygjur og spennur
Tagl og tígó
Grunnkennsla í fléttum
Innifalið:
Allar stelpur á námskeiðinu fá hárbursta, teygjur, spennur, pinnagreiðu
og hárlykkju frá Babyliss.
Á námskeiðinu býðst þátttakendum að kaupa hárgreiðslubókina
LOKKA á kynningarverði.
Tími:
Pabba- og afanámskeið verður haldið laugardaginn 7. desember kl 12:30-15:30
Mömmu- og ömmunámskeið verður haldið laugardaginn 14.desember kl 12:30-15:30
Námskeiðsgjad: 14.000 kr.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Staðsetning:
Tækniskólinn Skólavörðuholti, stofa 208 á jarðhæð
Skráning:
Fyrir pabba- og afanámskeið ýtið HÉR
Fyrir mömmu- og ömmunámskeið ýtið HÉR
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Nánari upplýsingar fást hjá Endurmenntunarskólanum í síma 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is.
Skrifa Innlegg