Við Karin Kristjana eigandi Nola.is, deilum vinnustofu á Brandenburg auglýsingastofunni sem er yndislegt því ég fæ að vera tilraunadýr þegar nýjar og spennandi vörur koma til hennar.
Karin flytur inn brjálæðislega flott augnhár frá Model Rock sem hún selur á síðunni sinni Nola.is sem ég hef mikið notað og er mjög ánægð með. Í gær komu þessi dásamlegu tvöföldu augnhár sem við erum að missa þvag yfir. Ég nota sjálf mikið gerviaugnhár og finnast þau svo skemmtileg og auðveld í notkun (eftir smá æfingu). Þau gefa manni þennan vá-faktor sem er svo gaman að hafa þegar maður fer eitthvað út.
Það eina sem Karin gerði áður en hún setti augnhárin var að setja smá eyeliner, og lítinn maskara á bæði efri og neðri augnhárin. Það mætti segja að með þessum er maður tilbúin á ball á 5 mínútum.
Þessi geta ekki klikkað!
Skrifa Innlegg