Jæja, þá vorum við að klára annan daginn af tökum á nýju hárbókinni sem ég er að gera fyrir Disney samsteypuna, Frozen ll.
Viðurkenni að ég er pínu búin á því líkamlega og andlega, en þetta verður eitthvað dásamlegt!
Saga Sig tók myndirnar, Magnea Einarsdóttir sá um stíliseringu og Karin Kristjana sminkaði stelpurnar.
Ný Frozen stuttmynd kemur út á næsta ári og er hárbókin tileinkuð henni. Hún gerist að sumri til og þurftum við að búa til fallegan ævintýra-blómaheim inn í stúdíói, en það sást ekki út um gluggann á stúdíóinu fyrir snjó. Frekar fyndið fyrirbæri- að þurfa að setja sig í sól- og sumargír korter fyrir jól og í blindbyl.
Gleðilegt sumar….ég meina jól.
Kveðja Elsa….ég meina Theodóra.
Skrifa Innlegg