fbpx

Disney-Vogue-Lífsstíll-Rauðhetta-Köben og lífið!

Lífið

Ég get sagt það með sönnu að síðustu 4 vikur lífs míns hafa verið þær brjálæðustu, vinnulega séð, sem ég hef upplifað!

Hef án gríns ekki sofið jafn lítið, verið jafn stressuð en afkastamikil síðan ég man eftir mér.

Það sem er að frétta er að Lífsstíll höf göngu sína á Stöð 2 vegna mikillar ánægju frá framleiðundum og áhorfendum (takk fyrir mig=)

Ég gerði eitt stykki Disney hárbók fyrir Ameríkumarkað.

Vann á Rauðhettu plús óteljandi greiðslur á kvöldin og daginn fyrir hitt og þetta.

Fór út á land í tvo daga með VOGUE og gerði 12 bls tískuþátt með þeim sem kemur í blaðinu í Desember.

Síðast en ekki síst var ég að vinna að þáttunum mínum og var að taka upp síðasta innslagið í dag.

Já, fór til Köben um helgina í brúðkaup systur minnar….

d1

Þó svo að þetta sé hrikaleg mynd af mér þá leyfi ég þessari að fljóta með, en þarna er Sarah eigandi og stofnandi SKYN Iceland í spjalli við mig fyrir Lífsstíl. Ótrúlega flott kona sem ég lít mikið upp til!

d4

Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður í spjalli fyrir Lífsstíl. Ég þrááái Pyro Pet kertin hennar!

d12

Helga og Karítas í Ígló&Indí þegar ég tók viðtal við þær fyrir Lífsstíl. Ótrúlega falleg vinnustofa!

d16

Stúdíóið í Disney myndatökunni. Fengum lánuð föt og props fyrir óhugnalega háar upphæðir og þökkum við kærlega fyrir alla þá hjálp sem við fengum og traustið. Þetta var ævintýralega fallegt.

d17

Skipulagið fyrir myndatökuna…..sko mig, ég kann líka alveg smá að vera skipulögð =)

d15

Ellen Lofts sá um stíliseringu, snillingurinn sá!

d14 d13Brave!! =) =) =)

d18

VOUGE!!!! Taska sem stíllistinn frá Vogue tók með sér í tökurnar =)

d6 d7

Við Ísak í góðum gír í tökunum =)

d8

d9

Hjónin á Strikinu í bongó blíðu.

d10

Gyða sys og Per að segja JÁ =)

d11

xxxxxx

Theodóra Mjöll

Nude neglur

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Adda Soffía

    11. June 2014

    vá! svo stolt af þér stelpa-ótrúlega vel gert <3

  2. Kristín María

    11. June 2014

    Ja hérna Theó mín. Þú ert flottust

  3. Svart á Hvítu

    11. June 2014

    Þú ert svo hrikalega dugleg! Ég varð eiginlega bara þreytt að lesa um allt sem þú varst að gera haha!:):)

  4. Aldís

    12. June 2014

    Þú ert ofurkona ** gleymdir að nefna að þú ert líka “fulljob mamma!”

    Duglega Duglega kona :) hlakka til að sjá þetta allt saman, Disney bókina og VOGUE myndaþáttinn .. og auðvitað Lífstílsþættina ** Eins gott að þú sért til ..

    Farðu nú líka vel með þig, það má og verður, eftir svona törn *hjarta*
    Aldís

  5. Gyða sys

    14. June 2014

    Duglega systir! Æðislegt að fá ykkur í brúðkaupið og takk fyrir okkur og takk fyrir flotta hárið mitt! Knús :)